Yfir 2 milljarða sparnaður í opinberum innkaupum

Fjármálaráðherra telur sparnað Ríkiskaupa vegna breyttra áherslna í opinberum innkaupum síðustu tveggja ára muni nema rúmlega tveimur milljörðum króna .

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Auglýsing

Áætl­aður ávinn­ingur vegna hag­ræðis fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í opin­berum inn­kaupum síð­ustu ára er tal­inn nema yfir tveimur millj­örðum króna. Sparn­að­ur­inn kemur meðal ann­ars frá samn­ingi við Microsoft og hag­kvæm­ari kaupum á flug­miðum Stjórn­ar­ráðs­ins. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Vil­hjálms Árna­sonar á vef Alþingis

Fyr­ir­spurn Vil­hjálms snýr að breyttum áherslum í opin­berum inn­kaupum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem kynntar voru árið 2016 og fólu þær meðal ann­ars í sér breyttar inn­kaupa­að­ferð­ir, t.d. sam­eig­in­leg inn­kaup, örút­boð og fækkun birgja.

Áhersl­urnar sem kynntar voru byggðu á nið­ur­stöðum starfs­hóps ráðu­neyt­is­ins frá árinu áður, en sam­kvæmt þeim var áætlað að slíkar breyt­ingar myndu ná fram 2-4 millj­arða króna hag­ræð­ingu í inn­kaupum á almennri vöru og þjón­ust­u. 

Auglýsing

Sam­kvæmt svari fjár­mála­ráð­herra munu þær breyt­ingar sem Rík­is­kaup hefur nú þegar gert á fyr­ir­komu­lagi ramma­samn­inga skila yfir tveimur millj­örðum krónum í heild­ar­á­vinn­ing yfir líf­tíma samn­ing­anna. Þar að auki nefnir ráð­herra nokkur dæmi um útboð sem skilað hafa mik­illi hag­ræð­ingu, en þau voru eft­ir­far­andi:

  • Útboð á tölvu­bún­aði þar sem áætl­aður ávinn­ingur er rúm­lega 100 millj­ónir króna á ári. 

  • Samn­ingur við Microsoft ­vegna hug­bún­að­ar­leyfa fyrir ríkið þar sem áætl­aður ávinn­ingur er um 200 millj­ónir króna árlega.

  • Sam­eig­in­leg inn­kaup grunn­skóla á rit­föngum þar sem örút­boð skil­aði verði sem var 64,2% undir kostn­að­ar­á­ætl­un.

  • End­ur­skipu­lagn­ing á inn­kaupum í flug­far­miðum stjórn­ar­ráðs­ins sem metið er að skili um 100 millj­óna króna ávinn­ingi út samn­ings­tím­ann.

Vil­hjálmur spurði einnig ráð­herra sér­stak­lega um ávinn­ing af ramma­samn­ingi um kaup á raf­orku til tveggja ára. Ráð­herra sagði samn­ing­ana hafi kostað um 1.721 millj­ónir króna fyrir bæði árin, 1.322 millj­ónir fyrir árið 2016 og 1.399 millj­ónir fyrir árið 2017. Hins vegar bætti hann við að erfitt sé að meta fjár­hags­legan ávinn­ing af samn­ing­unum þar sem raf­orku­verð séu breyti­leg.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent