Metnaðarfull markmið um að ná viðunandi arðsemi í bankarekstri

Fjallað er ítarlega um skráningu Arion banka, dreifingu í eignarhaldi bankans og stöðuna á hlutabréfamarkaði, í Vísbendingu sem kemur til áskrifenda á föstudaginn.

Arion banki
Auglýsing

Heild­ar­virði skráðra félaga fór yfir þús­und millj­arða króna með skrán­ingu Arion banka, og ætti skrán­ingin að vera lyfti­stöng fyrir íslenskan fjár­magns­mark­að. 

Margt bendir þó til þess að sænski mark­að­ur­inn verði aðal­vett­vangur fyrir við­skipti með hluta­bréf í bank­an­um. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu sem kemur til áskrif­enda á föstu­dag­inn, sem Egg­ert Þór Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur í eigna­stýr­ingu hjá Kviku banka, skrif­ar. 

Auglýsing

Í grein­inni er einnig fjallað um stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði, en hann hefur ein­kennst af miklum lækk­unum og minnk­andi veltu að und­an­förnu.

„Um langt skeið hefur legið fyrir að of mikið eigið fé er bundið í íslensku við­skipta­bönk­un­um. Jákvæðir ein­skipt­isliðir hafa að miklu leyti litað upp­gjör bank­anna á síð­ustu árum en nú þegar slíkir þættir heyra brátt sög­unni til verður æ erf­ið­ara fyrir bank­ana að skila við­un­andi arð­semi. Arð­semi eigin fjár Arion Banka nam 6,6% á síð­asta ári en aðeins 3,6% á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018. Á næstu árum er stefnt að því að ná 10% arð­semi eigin fjár og lækka kostn­að­ar­hlut­fall niður í u.þ.b. 50%. Það eru býsna metn­að­ar­full áform.

Eitt helsta verk­efni sem stjórn­endur Arion standa frammi fyrir er að lækka eig­in­fjár­þátt A úr núver­andi 23,6% hlut­falli niður í 17%, m.a. með útgáfu víkj­andi skulda­bréfa og breyt­an­legra skulda­bréfa. Umfram eigið fé bank­ans, sem mætti útdeila til hlut­hafa með því að lækka eig­in­fjár­hlut­fallið á næstu miss­erum, gæti hlaupið á 50 millj­örðum króna eða um þriðj­ungi af núver­andi mark­aðs­verð­mæti bank­ans. Margir fjár­festar velta að auki fyrir sér hvað verður um eign­ar­hlut bank­ans í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Valitor, hlutur sem met­inn er á 16 millj­arða króna í bókum bank­ans. Mikil áhersla hefur verið lögð á tekju­vöxt Valitor en sá vöxtur kostar sitt og hefur litað upp­gjör móð­ur­fé­lags­ins með nei­kvæðum hætti. Erlendis ganga fyr­ir­tæki í þessum geira kaupum og sölum á háum verð­miðum og þar er oft veltu­vöxtur mæli­kvarði á verð fyr­ir­tækja,“ segir meðal ann­ars í grein Egg­erts Þórs.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent