Telur lága vexti og minni verðhækkanir hafa leitt til fleiri íbúðakaupa

Lágir vextir og hægari verðhækkun íbúða gætu verið meginskýringar á því að fjöldi fyrstu íbúðakaupa hafi ekki verið meiri frá hruni á síðasta ársfjórðungi, samkvæmt Íbúðalánasjóði.

Húsnæði Íbúðalánasjóðs í Borgartúni.
Húsnæði Íbúðalánasjóðs í Borgartúni.
Auglýsing

Fyrst­u ­í­búða­kaup á öðrum árs­fjórð­ungi hafa ekki verið fleiri frá hruni. Íbúða­lána­sjóður tel­ur  aukn­ing­una í kaup­unum að mörgu leyti vera vegna minni verð­hækk­ana á hús­næði og lágra vaxta. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. 

Í skýrsl­unni er farið yfir þró­un fast­eigna-og ­leigu­mark­að­ar­ins á síð­ustu miss­erum, en sam­kvæmt henni hefur hækkun íbúða­verðs á árs­grund­velli verið um rúm fimm pró­sent og leigu­verðs um sjö pró­sent. Leigu­verðs­hækk­unin var nokkuð hærri en 5,9% hækkun launa­vísi­töl­unnar fyrir sama tíma­bil, en er í takti við með­al­tal árs­hækk­unar launa síðan 2012. Sömu­leiðis hefur hækkun íbúða­verðs verið hrað­ari en almenn verð­hækk­un, en verð­bólga síð­ustu tólf mán­uði nam 2,7 pró­sentum í júlí síð­ast­liðn­um.

Ekki fleiri frá hruni

Sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði hefur fyrst­u ­í­búða­kaup­um al­mennt fjölgað meira en ann­ars kon­ar ­í­búða­kaup­um ­síðan árið 2010. Þá voru fyrst­u ­í­búða­kaup um 9% allra ­í­búða­kaupa en nú er hlut­fallið um 26%. Í fyrra kom ákveðið bakslag þar sem tíma­bundið dró úr fjölgun fyrst­u ­í­búða­kaupa miðað við ann­ars kon­ar ­í­búða­kaup. Á fyrri helm­ingi þessa árs sner­ist þró­unin aftur við og fyrst­u ­í­búða­kaup­um tók að fjölg­um. 

Auglýsing

Lágir vextir og minni verð­hækk­anir

Í skýrsl­unni segir að leiða megi að því líkur að miklar verð­hækk­anir í fyrra hafi gert fyrst­u ­í­búða­kaup erf­ið­ari og átt sinn þátt í því að fyrstu kaupum hætti að fjölga í fyrra. Að sama skapi megi leiða að því líkur að í ár hafi skap­ast aukið svig­rúm fyrir suma að ráð­ast í fyrst­u ­í­búða­kaup í ljósi þess að íbúða­verð hafi ekki hækkað jafn mikið og í fyrra og vextir á íbúða­lánum hafi hald­ist lágir í sögu­legu sam­heng­i. 

Fyr­ir­tæki kaupa minna

Íbúða­lána­sjóður tók einnig saman tölur Þjóð­skrár um hlut­fall íbúða­við­skipta eftir því hvort það er ein­stak­lingur eða fyr­ir­tæki sem kaupir og sel­ur. Sam­kvæmt þeim tölum hefur íbúða­við­skiptum þar sem kaup­and­inn er fyr­ir­tæki farið fækk­andi und­an­farin miss­eri. Hlut­fall fyr­ir­tækja í í­búða­kaup­um hækk­aði mjög á seinni hluta árs 2012, þá einna helst í Reykja­vík vestan Kringlu­mýr­ar­braut­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent