Vegna frétta undanfarið um notkun ungmenna á ávanabindandi lyfjum hefur Embætti landlæknis tekið saman upplýsingar um alvarleg áhrif og afleiðingar misnotkunar. Þetta kemur fram í frétt velferðarráðuneytisins.
Á vefsíðu Embættis landlæknis er greint frá því að ef of stór skammtur ávanabindandi lyfja er tekinn geta afleiðingarnar verið bæði bráðar og óafturkræfar fyrir einstaklinginn.
Þá segir að bráð hætta stafi af ávanabindandi lyfjum. Þegar sterk verkjalyf eru notuð getur orðið blóðþrýstingsfall, svefnhöfgi og hætta á dái eða dauða vegna öndunarbælingar. Dæmi um lyf eru Contalgin, Oxycontin, Fentanyl, Búprenorfín og Tramadól. Þetta eru hættulegustu lyfin, samkvæmt Embættinu.
Slævandi eða róandi lyf eins og til að mynda benzódíazepín geta verið lífshættuleg séu þau tekin með áfengi og öðrum lyfjum sem hafa bælandi áhrif á miðtaugakerfið. Dæmi um róandi lyf eru Alprazolam, Sobril, Stesolid, Imovane, Stilnoct og Díazepam.
Bráð ofskömmtun af örvandi lyfjum getur meðal annars leitt til krampa, sem geta endað í dái, ofskynjana, óráðs, ofurhita, hraðtakts og háþrýstings. Dæmi um örvandi lyf eru amfetamín, Ritalin Uno og Concerta.
Samkvæmt Embættinu eykur notkun margra efna samtímis, til að mynda lyfja, áfengis og ólöglegra efna, mjög hættu vegna samverkunar. Einstaklingum sem sjaldan eða aldrei áður hafa notað viðkomandi lyf er mun hættara við alvarlegum aukaverkunum.
Lyf sem eru flutt inn af einstaklingum eða búin til á ólöglegan hátt eru mun hættulegri þar sem þau geta innihaldið ýmiss aukaefni. Dæmi um slíkt lyf er Xanax sem ekki er á markaði hér á landi. Xanax inniheldur alprazolam og iðulega önnur efni sem bætt hefur verið við.