Embætti landlæknis varar við misnotkun lyfja

Vegna frétta undanfarið um notkun ungmenna á ávanabindandi lyfjum hefur Embætti landlæknis tekið saman upplýsingar um alvarleg áhrif og afleiðingar misnotkunar.

lyfin
Auglýsing

Vegna frétta und­an­farið um notkun ung­menna á ávana­bind­andi lyfjum hefur Emb­ætti land­læknis tekið saman upp­lýs­ingar um alvar­leg áhrif og afleið­ingar mis­notk­un­ar. Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Á vef­síðu Emb­ættis land­læknis er greint frá því að ef of stór skammtur ávana­bind­andi lyfja er tek­inn geta afleið­ing­arnar verið bæði bráðar og óaft­ur­kræfar fyrir ein­stak­ling­inn.

Þá segir að bráð hætta stafi af ávana­bind­andi lyfj­u­m. Þegar sterk verkja­lyf eru notuð getur orðið blóð­þrýst­ings­fall, svefn­höfgi og hætta á dái eða dauða vegna önd­un­ar­bæl­ing­ar. Dæmi um lyf eru Contalg­in, Oxycont­in, Fent­anyl, Búp­renor­fín og Trama­dól. Þetta eru hættu­leg­ustu lyf­in, sam­kvæmt Emb­ætt­inu.

Auglýsing

Slævandi eða róandi lyf eins og til að mynda benzó­díazepín geta verið lífs­hættu­leg séu þau tekin með áfengi og öðrum lyfjum sem hafa bælandi áhrif á mið­tauga­kerf­ið. Dæmi um róandi lyf eru Alprazolam, Sobril, Stesolid, Imovane, Stil­noct og Díazepam.

Bráð ofskömmtun af örvandi lyfjum getur meðal ann­ars leitt til krampa, sem geta endað í dái, ofskynj­ana, óráðs, ofur­hita, hrað­takts og háþrýst­ings. Dæmi um örvandi lyf eru amfetamín, Ritalin Uno og Concerta.

Sam­kvæmt Emb­ætt­inu eykur notkun margra efna sam­tím­is, til að mynda lyfja, áfengis og ólög­legra efna, mjög hættu vegna sam­verk­un­ar. Ein­stak­lingum sem sjaldan eða aldrei áður hafa notað við­kom­andi lyf er mun hætt­ara við alvar­legum auka­verk­un­um.

Lyf sem eru flutt inn af ein­stak­lingum eða búin til á ólög­legan hátt eru mun hættu­legri þar sem þau geta inni­haldið ýmiss auka­efni. Dæmi um slíkt lyf er Xanax sem ekki er á mark­aði hér á landi. Xanax inni­heldur alprazolam og iðu­lega önnur efni sem bætt hefur verið við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent