Jón Pétur Zimsen hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Jón Pétur hefur starfað að skólamálum um árabil, nú síðast sem skólastjóri Réttarholtsskóla. Aðalverksvið Jóns Péturs í ráðuneytinu verður á sviði menntamála og stefnumótunar.
Þetta kemur fram í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Jafnfram segir í fréttinni að Jón Pétur hafi lokið B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1999 og lagt stund á M.Ed-nám í stjórnun menntastofnana við HÍ. „Hann hóf að kenna við Réttarholtsskóla árið 1998 og starfaði síðar einnig sem aðstoðaskólastjóri (2007-2015) og skólastjóri (2015-2018). Jón Pétur hefur tekið virkan þátt í ýmsum félagasamtökum kennara og skólastjórnenda, s.s. með samninganefnd FG og í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur. Hann hefur kennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, komið að endurskoðun námsskrár í náttúrufræði og auk þess unnið að fjölbreyttum æskulýðs- og íþróttamálum.“