Árið 2017 voru heildartekjur einstaklinga að meðaltali 6,4 milljónir króna á ári og mánaðartekjur að jafnaði 534 þúsund krónur sem er um 6,7 prósent hærra en árið áður sé miðað við verðlag ársins 2017. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.
Af tíu fjölmennustu sveitarfélögunum var meðaltal heildartekna hæst í Garðabæ eins og síðustu ár eða 8,2 milljónir króna. Þar á eftir kemur Kópavogur með meðaltekjur upp á 6,9 milljónir króna. Hækkun milli ára er svipuð hjá þessum stærstu sveitarfélögum. Hafa ber í huga að öfgagildi geta haft töluverð áhrif á meðaltekjur og þá sérstaklega í smærri sveitarfélögum.
Þá var miðgildi heildartekna 5,0 milljónir króna eða 416 þúsund krónur á mánuði sem þýðir að annar hver einstaklingur hafði mánaðartekjur undir þessari upphæð. Miðgildi heildartekna hækkaði um 7,1 prósent miðað við verðlag ársins 2017.
Frá árinu 2000 jókst miðgildi heildartekna jafnt og þétt til ársins 2007. Næstu þrjú árin þar á eftir lækkuðu heildartekjur alls um rúmlega 20 prósent. Síðan þá hafa meðaltekjur verið á uppleið og eru nú nálægt því sem þær voru árið 2007 á verðlagi ársins 2017. Samsetning tekna hefur þó breyst þannig að hlutdeild fjármagnstekna í heildartekjum er að meðaltali minni nú en var í kringum árið 2007. Í frétt Hagstofunnar segir að hafa beri í huga að þessi meðaltöl byggja á einstaklingum 16 ára og eldri.