Björgólfur Jóhannsson, sem verið hefur forstjóri Icelandair Group undanfarin ár, er hættur störfum hjá félaginu. Markaðsvirði félagsins hefur hrunið að undanförnu, en og hefur afkoman verið slakari en spár gerðu ráð fyrir.
Samkvæmt tilkynningu til kauphallar, og uppfærðri afkomuspá, mun afkoma ársins verða lægri en gert var ráð fyrir. Félagið áætlar að EBITDA ársins 2018 verði á bilinu 80-100 milljónir USD, eða sem nemur um 8,5 til 11 milljörðum króna.
„Í fyrsta lagi gerðum við enn ráð fyrir því við gerð seinustu afkomuspár að meðalfargjöld á seinustu mánuðum ársins myndu hækka, meðal annars í takt við kostnaðarhækkanir flugfélaga. Við teljum nú að þessar hækkanir muni skila sér síðar, þ.e. ekki fyrr en á árinu 2019.
Í öðru lagi hefur innleiðing breytinga sem gerðar voru í byrjun sumars 2017 á sölu- og markaðsstarfi félagsins ekki gengið nægilega vel fyrir sig auk þess sem gerðar voru breytingar á leiðarkerfi félagsins í byrjun þessa árs sem hafa valdið misvægi á milli framboðs fluga til Evrópu annars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Vegna þessa hafa spálíkön, sem meðal annars byggja á sögulegri þróun, ekki virkað sem skyldi og er uppfærð tekjuspá lægri en fyrri spá gerði ráð fyrir.
Það er mat okkar að lækkun farþegatekna Icelandair sem rekja megi til fyrrgreindra breytinga sé á bilinu 5-8% (50-80 milljónir USD) á ársgrundvelli. Eins og kom fram í upplýsingum sem félagið sendi frá sér í tengslum við birtingu uppgjörs á afkomu annars ársfjórðungs, hefur þegar verið gripið til aðgerða til að bregðast við þessari þróun. Þær aðgerðir eru farnar að skila árangri en við áætlum að það muni taka nokkra mánuði að sjá áhrif þeirra í afkomu félagsins. Við metum þessi neikvæðu áhrif á tekjur á þessu ári sem einskiptisliði.
Þær ákvarðanir sem lýst er hér að ofan eru teknar á minni vakt. Það er ljóst að þær hafa valdið félaginu fjárhagslegu tjóni á þessu ári. Ég ber sem forstjóri félagsins ábyrgð gagnvart stjórn og hluthöfum. Fyrr í dag tjáði ég stjórn að ég óskaði efir því að láta af starfi forstjóra Icelandair Group. Þó að vissulega sé búið að taka á fyrrnefndum vandamálum þá er það ábyrgðarhluti að hafa ekki fylgt breytingunum eftir með fullnægjandi hætti og brugðist fyrr við. Þá ábyrgð tel ég rétt að axla og læt því af störfum sem forstjóri félagsins,“ segir Björgólfur.
Stjórnarformaður Icelandair Group, Úlfar Steindórsson, segir í yfirlýsingu að það lýsi Björgólfi vel, að hann sé tilbúinn að axla ábyrgð með þessum hætti. „Björgólfur hefur verið forstjóri Icelandair Group í yfir tíu ár, á mesta vaxtarskeiði félagsins. Hann leiddi fjárhagslega endurskipulagningu þess og hefur alla tíð lagt áherslu á ábyrgan rekstur og að vöxtur félagsins sé arðbær til lengri tíma litið. Hann skilur við fjárhagslega sterkt félag, Icelandair Group var með 251 milljón USD í handbæru fé við lok annars ársfjórðungs og 530 milljónir USD í eigin fé. Mér finnst það lýsa persónu Björgólfs vel að axla ábyrgð þegar betur hefði mátt gera. Að beiðni stjórnar mun Björgólfur vera stjórn og stjórnendum til ráðgjafar. Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála félagsins hefur fallist á ósk stjórnar um að gegna stöðu forstjóra tímabundið. Stjórnin mun gefa sér góðan tíma til að finna félaginu forstjóra til framtíðar. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Björgólfi kærlega fyrir frábært samstarf og óska honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.“
Markaðsvirði Icelandair er nú um 40 milljarðar króna og hefur lækkað mikið undanfarna mánuði. Í apríl 2016 náði það hæstu hæðum, þegar það var 189 milljarðar króna. Eigið fé félagsins var um mitt þetta ár 55 milljarðar króna.