Almenna leigufélagið hagnaðist um 401 milljón á hálfu ári

Framkvæmdastjóri eins stærsta almenna leigufélags landsins segir að félagið finni mikinn meðbyr og ánægju meðal viðskiptavina sinna.

img_4955_raw_0710130602_10191533305_o.jpg
Auglýsing

Almenna leigu­fé­lag­ið, félag í eigu sjóða GAMMA sem á 1.262 leigu­í­búð­ir, hagn­að­ist um 401 milljón króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018. Rekstr­ar­tekjur félags­ins juk­ust um 21 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra og voru 1.253 millj­ónir króna. Alls eru eignir Almenna leigu­fé­lags­ins metnar á 45,3 millj­arða króna og þar af voru fjár­fest­inga­eign­ir, sem eru íbúð­irnar sem félagið leigir út, metnar á 44,7 millj­arða króna. Félagið skuldar 28,6 millj­arða króna og því er eigið fé þess 12,7 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri Almenna leigu­fé­lags­ins sem birt var í dag.

Í upp­gjör­inu kemur fram að í byrjun júní hafi Almenna leigu­fé­lagið gengið frá kaup­unum á öllum hlutum í tveimur félögum utan um fast­eign­ir, Reykja­vik Apart­ments ehf., X459 ehf. Auk þess keypti það helm­ings­hlut í L56 ehf. Alls er um að ræða 70 mjög litlar íbúðir í mið­borg Reykja­víkur sem verða til útleigu til skemmri og lengri tíma.

María Björk Ein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Almenna leigu­fé­lags­ins, segir í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar, að félagið finni fyrir miklum með­byr og ánægju meðal við­skipta­vina sinna. „Það er allra hagur að hér sé byggður upp fjöl­breyttur hús­næð­is­mark­aður sem mætir þörfum ólíkra þjóð­fé­lags­hópa. Starf­semi öfl­ugra leigu­fé­laga, sem bjóða við­skipta­vinum sínum betri þjón­ustu en áður tíðk­að­ist, er mik­il­vægur þáttur í því. Áætluð sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild stærri leigu­fé­laga sem starfa á almennum mark­aði er í dag um 12 pró­sent.“

Auglýsing
Almenna leigu­fé­lagið stefnir að því að skrá sig á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar á næsta ári og stendur und­ir­bún­ingur yfir.

Mark­aðsvirði Heima­valla minna en eigið fé félags­ins

Á þeim mark­aði er nú þegar eitt almennt leigu­fé­lag, Heima­vell­ir, sem er stærsta félag sinnar teg­undar á Íslandi.  Heima­vellir voru reknir með tapi á fyrri hluta árs­ins, en tap félags­­ins var sam­tals 136 millj­­ónum króna á tíma­bil­inu. Það tap var þó fyrst og síð­­­ast til komið vegna mats­breyt­inga á virði fast­­eigna í eigu Heima­valla. Áður en að tekið var til­­lit til þeirra nam rekstr­­ar­hagn­aður Heima­valla á tíma­bil­inu 1.056 millj­­ónum króna. Það þýðir að 57,6 pró­­sent af rekstr­­ar­­tekjum félags­­ins voru hagn­að­­ur, en það hlut­­fall var mun lægra á sama tíma í fyrra, eða 47,2 pró­­sent.

Eigið fé Heima­valla var 18,6 millj­arðar króna um mitt þetta ár, sem er umtals­vert meira en mark­aðsvirði alls hluta­fjár í félag­inu. Það er um 13 millj­arðar króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent