Heimavellir ætla að klára endurfjármögnun á næstu mánuðum

Arion banki undirbýr útgáfu skuldabréfa fyrir Heimavelli sem stefnt er að bjóða fjárfestum í október. Takist Heimavöllum að endurfjármagna milljarða skuldir við Íbúðalánasjóð þá getur félagið greitt hluthöfum sínum arð.

Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum í maí
Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum í maí
Auglýsing

Heima­vell­ir, stærsta leigu­fé­lag lands­ins sem starfar á almennum leigu­mark­aði, not­aði nýliðið sumar til að und­ir­búa end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­skuldum sín­um. Fyr­ir­hugað er að hrinda end­ur­fjár­mögn­un­inni í fram­kvæmd á næstu mán­uð­um.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér vegna árs­hluta­upp­gjörs fyrstu sex mán­aða árs­ins fyrir helgi. Þar segir að nýleg skrán­ing Heima­valla „í kaup­höll var ekki síst hugsuð til að styrkja stöðu félags­ins til að ná betri kjörum á fjár­magns­mark­aði. Eitt mik­il­væg­asta verk­efni félags­ins er einmitt end­ur­fjár­mögnun lang­tíma­skulda. Heima­vellir eiga í sam­starfi við Arion banka um útgáfu á fast­eigna­tryggðum skulda­bréfum sem er stefnt að bjóða fjár­festum í októ­ber næst­kom­andi. Við teljum að skulda­bréf hjá skráðu félagi með veði í vönd­uðu íbúða­safni ætti að höfða til margra lang­tíma­fjár­festa“.

Heima­vellir voru reknir með tapi á fyrri hluta árs­ins, en tap félags­ins var sam­tals 136 millj­ónum króna á tíma­bil­inu. Það tap var þó fyrst og síð­ast til komið vegna mats­breyt­inga á virði fast­eigna í eigu Heima­valla. Áður en að tekið var til­lit til þeirra nam rekstr­ar­hagn­aður Heima­valla á tíma­bil­inu 1.056 millj­ónum króna. Það þýðir að 57,6 pró­sent af rekstr­ar­tekjum félags­ins voru hagn­að­ur, en það hlut­fall var mun lægra á sama tíma í fyrra, eða 47,2 pró­sent.

Ríkið seldi og lán­aði

Heima­vellir er félag sem var stofnað árið 2015. Það skuldar í dag 36,1 millj­arða króna og á 1.978 íbúð­ir. Íslenska ríkið seldi Heima­völlum flestar þær eignir sem félagið hefur eignast, í gegnum ann­ars vegar Kadeco og hins vegar Íbúða­lána­sjóð.

Auglýsing
Íslenska ríkið er líka stærsti lán­veit­andi Heima­valla, en stór hluti þeirra upp­kaupa á hús­næði sem átt hefur sér stað í gegnum Heima­velli er fjár­magn­aður með lán­um. Í aðdrag­anda þess að bréf Heima­valla voru tekin til við­skipta í kaup­höll í kjöl­far skrán­ingu félags­ins á markað í maí, greindi Kjarn­inn frá því að stór hluti af núver­andi fjár­mögnun Heima­valla er í formi lána frá Íbúða­lána­sjóði sem veitt hafa verið á grund­velli reglu­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“.

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla segir að til að „upp­fylla form- og efn­is­skil­yrði Reglu­gerð­ar­innar mega félög sem veitt hafa verið slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni og úr þeim má hvorki greiða arð né arðsí­gild­i“. Slík lán eru veitt til 50 ára.

Um síð­ustu ára­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­arða króna í slík lán. Það voru rúm­lega helm­ingur af öllum vaxta­ber­andi skuldum félags­ins um síð­ustu ára­mót

Geta greitt arð ef það tekst að end­ur­fjár­magna

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni sagði að stefna Heima­valla sé að „end­ur­fjár­magna þessi lán á næstu miss­erum enda telja stjórn­endur að félag­inu muni bjóð­ast betri kjör og skil­málar á mark­aði. Ekki er á þessu stigi hægt að segja til um hvenær slíkri end­ur­fjár­mögnun mun ljúka né á hvaða kjörum hún mun bjóð­ast. Sú hætta er fyrir hendi að félag­inu tak­ist ekki að end­ur­fjár­magna lánin á kjörum sem það telur ásætt­an­leg. Komi til þess, og félagið ákveður að eiga eign­irnar áfram, munu við­kom­andi dótt­ur­fé­lög áfram þurfa að lúta skil­yrðum Reglu­gerð­ar­inn­ar, þ.m.t. banni við greiðslu arðs eða arðsí­gild­is.“

En nú stendur sem sagt til að klára end­ur­fjár­mögnun á ofan­greindum lánum svo að hægt verði að greiða út arð hjá Heima­völl­um. Umtals­vert svig­rúm er til slíks. Eigið fé Heima­valla í lok júní síð­ast­liðnum var 18,6 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið var 32,1 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar