Aðstoðarmaður utanríkisráðherra skipaður í stjórn Íslandsstofu

Ný stjórn Íslandsstofu hefur verið skipuð. Fyrrverandi forstjóri Icelandair er nýr stjórnarformaður og annar eigandi KOM tekur einnig sæti í stjórninni. Nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn á næstunni.

Borgar Þór Einarsson, Friðjón R. Friðjónsson, Björgólfur Jóhannsson og Jens Garðar Helgason eru allir komnir í stjórn Íslandsstofu.
Borgar Þór Einarsson, Friðjón R. Friðjónsson, Björgólfur Jóhannsson og Jens Garðar Helgason eru allir komnir í stjórn Íslandsstofu.
Auglýsing

Björgólfur Jóhanns­son, sem sagði af sér sem for­stjóri Icelandair fyrir skemmstu, er nýr stjórn­ar­for­maður Íslands­stofu. Auk hans voru Hildur Árna­dótt­ir, vara­for­mað­ur, Ást­hildur Othars­dóttir og Jens Garðar Helga­son, for­maður Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, öll til­nefnd af Sam­tökum atvinnu­lífs­ins. Þá voru Áshildur Braga­dóttir og Borgar Þór Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, til­nefnd í stjórn­ina af Guð­laugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skip­aði Frið­jón R. Frið­jóns­son, einn eig­anda KOM almanna­tengsla og mið­stjórn­ar­mann í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, í stjórn­ina.

Íslands­stofa er sam­starfs­vett­vangur atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda og hefur það hlut­verk að auka gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­innar með þrótt­miklu starfi í þágu íslenskra útflutn­ings­greina.

Eitt af fyrstu verkum stjórn­ar­innar verður að ráða nýjan fram­kvæmda­stjóra Íslands­stofu, en Jón Ásbergs­son, sem hefur gengt starf­inu frá árinu 2010, hefur óskað eftir því að láta af störf­um. Staða fram­kvæmda­stjóra verður aug­lýst á næstu dög­um.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu segir að hlut­verk Íslands­stofu sé að „vera sam­starfs­vett­vangur atvinnu­lífs, hags­muna­sam­taka, stofn­ana og stjórn­valda um stefnu og aðgerðir til þess að auka útflutn­ings­tekjur og hag­vöxt. Enn fremur að veita alhliða þjón­ustu og ráð­gjöf til allra útflutn­ings­greina í því skyni að greiða fyrir mark­aðs­setn­ingu og útflutn­ingi á vöru og þjón­ustu og að laða erlenda ferða­menn til lands­ins með sam­ræmdu kynn­ing­ar- og mark­aðs­starfi. Þá er Íslands­stofu ætlað að laða erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins og upp­lýsa erlenda fjár­festa um kosti Íslands og að styðja við kynn­ingu á íslenskri menn­ingu, vörum og þjón­ustu erlend­is.“

Björgólf­ur, nýr stjórn­ar­for­mað­ur, segir spenn­andi tíma vera framundan hjá Íslands­stofu. „Gríð­ar­margt hefur áunn­ist á und­an­förnum árum undir for­ystu Jóns Ásbergs­sonar sem hefur unnið óeig­in­gjarnt starf, af miklum metn­aði og fag­mennsku. Það var ein­dregin ósk nýrrar stjórnar þegar ljóst var að Jón vildi láta af starfi fram­kvæmda­stjóra að hann myndi áfram ljá okkur krafta sína í nýju hlut­verki. Nú horfum við til fram­tíðar og það er ljóst að breytt rekstr­ar­form gefur okkur tæki­færi til að halda áfram að sækja fram af krafti fyrir íslenskt atvinnu­líf.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent