Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á konur á vinnumarkaði?

Fjallað erum áhrifin af aukinni gervigreind í atvinnulífinu í nýjustu útgáfu Vísbendingar.

konur
Auglýsing

„Hlutur kynj­anna er sér­lega ójafn í þeim atvinnu­greinum sem vaxa nú hvað hraðast, til að mynda ­tölvu­greinum og upp­lýs­inga­tækni. Eft­ir­spurn eftir þekk­ingu og færni í þessum greinum er í gríð­ar­legum vexti og hér eru konur því miður enn í miklum minni­hluta. Hið jákvæða er að kon­um ­sem ljúka námi í slíkum greinum hefur farið fjölg­and­i.“

Þetta er meðal þess sem segir í umfjöllun Lilju Daggar Jóns­dótt­ur, hag­fræð­ings og MBA, í umfjöllun í Vís­bend­ingu sem kemur til áskrif­enda á morg­un. Þar er fjallað um hvaða áhrif aukin gervi­greind­ar­væð­ing í atvinnu­lífi mun hafa á konur í atvinnu­líf­inu.

Lilja Dögg Jónsdóttir, hagfræðingur og MBA frá Harvard.Meðal ann­ars er fjallað um alþjóð­legar rann­sóknir um áhrifin af auk­inni tækni­væð­ingu á vinnu­mark­að­inn. „Við­skipta­ráð banda­rískra yfir­valda (e. United States Depart­ment of Commerce) hefur bent á að konur með háskóla­gráður í tækni­greinum séu ólík­legri en karl­ar ­með sam­bæri­legar gráður til að vinna í þeim geira. Í Banda­ríkj­unum eru um 47% kvenna­starf­andi en aðeins 24% í tækni­grein­um. Þær eru þó 30% útskrif­aðra í tækni­grein­um. ­Sam­bæri­leg töl­fræði er ekki auð­fundin um konur í tækni­greinum á Íslandi en Skýrslu­tækni­fé­lag Ís­lands hefur áætlað að konur gegni um 10-20% starfa í þessum geira. Þetta er tölu­verður vandi og það kannski einna helst vegna þess hve mik­il­vægar þess­ar at­vinnu­greinar eru. Þær móta nú allt umhverfi okkar til fram­tíð­ar, bæði í sam­fé­lag­inu almennt (til að mynda í gegnum sam­fé­lags­miðla) og ekki síður í atvinnu­líf­inu (í gegnum hug­bún­að, miðla og ­þjón­ust­u). Þetta er sú tækni sem breyt­ingar morg­un­dags­ins koma til með að byggja á, og eins og málin standa núna, þá er hún búin til af afar eins­leitum hópi karla,“ segir meðal ann­ars í grein­inni.

Auglýsing

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent