Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kynnti aðgerðir í fjölmiðlamálum, og hvernig styrkja eigi rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, á ríkisstjórnarfundi í morgun. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans stendur til að kynna tillögurnar opinberlega í byrjun næstu viku.
Unnið var að söfnun gagna og því að leggja mat á tillögur til að styrkja rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi síðastliðið vor og sumar. Fram kom í máli Elfu Ýrar Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar í maí síðastliðnum að leggja ætti fyrir ráðherra hugmyndir um hvernig styrkja eigi rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Á meðal þeirra tillagna sem voru til umfjöllunar voru tillögur varðandi greiðslur vegna talsetningar og textunar og tillögur til að fjármagna starfsemi ritstjórna sem vinna fréttatengt efni.
Þann 26. apríl síðastliðinn var tilkynnt um að Gylfi Ólafsson, fyrrverandi aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra, hefði verið ráðinn í tímabundið starf verkefnastjóra hjá fjölmiðlanefnd. Samkvæmt frétt á vef nefndarinnar var Gylfa ætlað að „afla gagna og leggja mat á tillögur nefndar um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, sem birtar voru í janúar sl..“ Byggt hefði verið á afrakstri þeirrar vinnu við undirbúning að ákvörðunartöku stjórnvalda um hvernig hægt væri að styrkja rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Meðal annars hefði verið byggt á mikilvægum upplýsingum í skýrslum fjölmiðla sem þeir afhenda fjölmiðlanefnd árlega, samkvæmt lögum um fjölmiðla. Gert var ráð fyrir að fyrstu hugmyndir lægju fyrir í byrjun sumars en það ylti á því hversu vel myndi ganga að afla nauðsynlegra upplýsinga frá fjölmiðlunum sjálfum.
Sjö tillögur um aðgerðir
Nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, sem Illugi Gunnarsson skipaði í lok árs 2016, skilaði skýrslu með tillögum um umbætur í lok janúar síðastliðnum. Nefndin gerði tillögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstrarskilyrði fjölmiðla.
Þær snéri meðal annars að stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, skattalegu umhverfi, textun og talsetningu og endurgreiðslu framleiðslukostnaðar á fréttum og fréttatengdu efni. Þá var einnig ítarleg samantekt um opinberan stuðning við fjölmiðla í helstu nágrannaríkjum auk sérálits tveggja nefndarmanna.
Í nefndinni sátu Björgvin Guðmundsson, formaður, meðeigandi KOM ráðgjafar, Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar, Hlynur Ingason, starfsmaður í fjármála- og efnahagsráðuneyti, Soffía Haraldsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri mbl.is, og Svanbjörn Thoroddsen, meðeigandi KPMG.