Íslenska verður áfram kennd við Kaupmannahafnarháskóla en áformað var að leggja niður valnámskeið í norrænum fræðum, þar með talið í íslensku, forníslensku og færeysku, vegna niðurskurðar við hugvísindadeild skólans. Frá þessu er greint í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Samkvæmt ráðuneytinu hafa Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Tommy Ahlers menntamálaráðherra Danmerkur fundað um málið og nú er ljóst að kennslunni verður fram haldið en háskólinn hyggst endurskipuleggja námið.
Ráðherra segir þetta vera afar jákvæðar fréttir og sé hún bjartsýn um að farsæl lausn sé í farvatninu sem muni tryggja að námsframboð í íslensku verði áfram gott við Kaupmannahafnarháskóla. „Íslendingar og Danir eiga farsælt samstarf á sviði tungumála, rannsókna og menningar og þar er Kaupmannahafnarháskóli mikilvægur hlekkur. Við metum samvinnu og skilning danskra menntamálayfirvalda mikils í þessu máli,“ segir hún.
„Kaupmannahafnarháskóli er ein elsta menntastofnun Norður-Evrópu og eini danski háskólinn þar sem boðið er upp á nám í íslensku. Þar er einnig varðveittur hluti handritasafns Árna Magnússonar.
Í svörum skólans kemur fram að tryggt verði að framlag til handritarannsókna verði óskert og að skólinn muni að sjálfsögðu virða áfram sína samninga og skuldbindingar við Stofnun Árna Magnússonar. Fram hefur komið að eftirspurn eftir námi í íslensku, forníslensku og færeysku sé ekki mikil og atvinnutækifæri fá í Danmörku fyrir fólk með menntun á þeim sviðum og því verði nauðsynlegt að aðlaga kennslu í fögunum að fámennari nemendahópum. Unnið verður að útfærslu þess í samráði við danska menntamálaráðuneytið,“ segir í fréttinni.
Jafnframt kemur fram að hugað verði að námsframboði í forn- og nútímaíslensku fyrir doktorsnema við skólann. Kaupmannahafnarháskóli eigi enn fremur í góðu samstarfi við íslenska háskóla um sumarskóla, námskeið og kennaraskipti og muni skólinn áfram bjóða dönskum nemendum upp á valnámskeið í íslenskum bókmenntum, bæði klassískum og nútímabókmenntum.