Stefnt er að því að Vaðlaheiðargöng verði tekin í notkun 1. desember næstkomandi. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Vaðlaheiðargöngum hf. og verktakafyrirtækinu Ósafli sf., sem stefnir að því að afhenda göngin tilbúin til umferðar föstudaginn 30. nóvember.
Upphaflegar áætlarnir gerðu ráð fyrir því að göngin yrðu tilbúin árið 2016 en erfiðleikar við framkvæmdir, meðal annars vegna jarðhita og vatnselg, hafa tafið framvindu.
Heildarkostnaður er nú áætlaður 16 til 17 milljarðar króna.
Samkomulag um uppgjör og greiðslu bóta til Ósafls samkvæmt úrskurði sáttanefndar sem starfar samkvæmt ákvæðum verksamnings, hefur einnig náðst. „Bæturnar eiga sér einkum rót í áhrifum af umfangsmeiri jarðhita á gangaleiðinni en vænst var og námu á verðlagi samningsins kr. 1.379 milljónum. Verkkaupi gerir ágreining um bótafjárhæðina og hefur í samræmi við reglur verksamningsins áskilið sér rétt til að fara með hann fyrir dómstóla,“ segir í tilkynningunni.
Einar Hrafn Hjálmarsson, verkefnisstjóri Ósafls, sagði í tilkynningunni að gangagerðin hafi verið erfið áskorun og tekið á starfsmenn vegna óvenju erfiðra jarðfræðilegra aðstæðna. Jarðhitinn hafi verið miklu meiri og útbreiddari en vænst hafi verið. „Við munum nú einhenda okkur í lokavinnuna, kalla til fleiri starfsmenn og setja fleiri á vaktir til þess að ná því marki að skila göngunum tilbúnum til umferðar 30. nóvember næstkomandi.“
Í yfirlýsingu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu segir að það sé fagnaðarefni að þessu umfangsmikla verkefni sé nú að ljúka. „Á ríkisstjórnarfundi í dag upplýsti fjármála- og efnahagsráðherra ríkisstjórnina um stöðu málsins, þ.e. að verktaki og verkkaupi hafi kynnt samning um hvernig ljúka megi göngunum og opna fyrir umferð 1. desember. Samningurinn var með fyrirvara um staðfestingu ríkissjóðs, sem lánveitanda, og hluthafa Vaðlaheiðarganga en ráðherra upplýsti ríkisstjórn um skilyrði ríkissjóðs fyrir samþykkt samningsins. Skilyrðin snúa að því hvernig verkkaupi geti dregið á lán til greiðslu verktaka þannig að hagsmunir allra aðila, að því að ljúka verkinu sem fyrst, fari saman. Það er fagnaðarefni fyrir ríkissjóð að sjá fram á lok verksins og að hægt verði innan fárra mánaða að hleypa umferð um göngin, almenningi til heilla,“ segir í yfirlýsingunni.