WOW Air þarf að standast ströng álagspróf

Í greiningu Pareto vegna skuldabréfaútgáfu WOW Air kemur fram að flugfélagið muni þurfa að standast regluleg álagspróf á eiginfjárhlutfalli.

wowair, wow air, airbus, flugvél
Auglýsing

Í skil­málum skulda­bréfa­út­gáfu WOW Air koma fram lána­skil­málar með gjald­fell­ing­ar­heim­ildum sem kveða á um fram­kvæmd sér­stakra álags­prófa þar sem bæði laus­fjár- og eig­in­fjár­staða Wow Air má ekki fara undir til­tekin mörk. Er gert ráð fyrir að fyrsta álags­prófif vegna eigin fjár fari fram hinn 30. sept­em­ber næst­kom­and­i. 

Frá þessu var greint á Vísi.is í gær, en eins og fram hefur komið þá hyggst WOW Air sækja sér 50 til 100 millj­ónir evra í útboð­inu, og er horft til þess að skrá félagið á markað í Frank­furt eins fljótt og hægt er, eins og það er orðað í frétt Vís­is.

Í skil­mál­unum kemur fram að álags­próf vegna eig­in­fjár muni fara fram árlega í lok þriðja árs­fjórð­ungs og í því megi eigið fé Wow Air ekki fara undir 25 millj­ónir doll­ara, jan­virði 2,8 millj­arða króna, fyrstu 12 mán­uði eftir útgáfu­dag skulda­bréfs. Og ekki undir 30 millj­ónir doll­ara í ár þar á eft­ir. Tveimur árum eftir útgáfu­dag má eigið fé ekki vera undir 35 millj­ónum doll­ara, jafn­virði 3,9 millj­arða króna. 

Auglýsing

Áður hefur verið upp­lýst að eigið fé Wow Air var 1,5 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins, en á fyrri hluta árs­ins var við­skipta­vildin aukin um 19 millj­ónir Banda­ríkja­dala, frá því sem hún var í lok síð­asta árs, og styrkti þetta eig­in­fjár­stöðu félags­ins. Mikið tap hefur verið á rekstri félags­ins að und­an­förnu og nam það tæp­lega 5 millj­örðum króna frá júní í fyrra til júní á þessu ári. Áætl­anir gera ráð fyrir að rekst­ur­inn muni rétta úr kútnum seinni hluta þessa árs, en samt verði tapið 3,3 millj­arð­ar.

Lík­legt er að nið­ur­staða muni ligga fyrir í skulda­bréfa­út­boð­inu fyrri part­inn í næstu viku, og kemur þá í ljós hversu mikla fjár­muni félagið getur náð sér í og á hvaða vaxta­kjör­u­m. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent