WOW air skuldar Isavia ohf. um tvo milljarða króna í lendingargjöld samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Af þeirri skuld er um helmingurinn nú þegar gjaldfallinn.
Í frétt Morgunblaðsins segir að WOW hafi ekki greitt lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli frá því í vor og hafa innlendar viðskiptakröfur Isavia hækkað um 1.220 milljónir króna frá áramótum samkvæmt nýbirtum ársreikningi Isavia.
Ekki liggur enn ljóst fyrir með hvaða hætti Isavia hyggst innheimta skuld flugfélagsins.
Þegar Morgunblaðið leitaði viðbragða Isavia fengust þau svör að fyrirtækið tjáði sig ekki um málefni einstaka viðskiptavina sinna. Þegar spurt var út í almennt verklag við úrlausn mála þegar flugfélög lentu í vanskilum með lendingargjöld var svarið á þá leið að „Isavia vinnur með viðkomandi félögum að lausn mála ef upp koma tilvik þar sem vanskil verða á lendingargjöldum með hagsmuni Isavia að leiðarljósi.“
Greint var frá því í gær að skuldabréfaútboði WOW air ljúki á þriðjudaginn og að útgáfan verði að lágmarki 50 milljónir evra. Skuldabréfin eru til þriggja ára og vextir eru níu prósent ofan á þriggja mánaða Euribor vexti, sem eru millibankavextir á evrumarkaði.
Skúli Mogensen segir í stöðuuppfærslu á Facebook að frétt Morgunblaðsins sé röng. Þar segir:
„Ég get ekki orða bundist lengur að sjá hvernig sumir fjölmiðlar keppast um að tortryggja WOW air og það sem við höfum byggt upp undanfarin ár. Ég hreinlega trúi ekki að nokkur blaðamaður eða fjölmiðill sé svo skammsýnn að vilja vísvitandi skemma fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Nýjasta "fréttin" er að við eigum að skulda Isavia yfir tvo milljarða. Þessu er slegið upp með stórri fyrirsögn í æsifréttastíl á forsíðu Morgunblaðsins í dag og er vitnað í nafnlausan heimildarmann. Við leggjum ekki í vana að tjá okkur um einstaka birgja eða þjónustusamninga en þetta er einfaldlega rangt. Við eigum mjög gott samstarf við Ísavía og höfum aldrei skuldað þeim yfir tvo milljarða króna og það er til skammar að Morgunblaðið sé að slá upp slíkum fyrirsögnum án áreiðanlegra heimilda.
Svo í ofanálag kemur tímabundinn forstjóri Icelandair og fer að kvarta yfir mismunun og að við séum að selja flugmiða of lágu verði. (þá vitum við hver staðan væri ef WOW hefði ekki komið til sögunnar!) Við getum og munum halda áfram að selja flugmiða á frábærum verðum einfaldlega af því að við erum með mun lægri rekstrar kostnað en Icelandair. Afkoma WOW air á þriðja ársfjórðungi verður góð og útlit fyrir að seinni hluti ársins verði einnig góður.
Það hefur ekkert félag í Íslandssögunni fengið jafn mikla ríkisaðstoð og verið bjargað jafn oft af ríkinu eins og Icelandair. Jafnframt er ríkisbankinn Íslandsbanki stærsti lánveitandi félagsins.
Ég hlakka til að klára útboðið okkar á þriðjudaginn og fá frið til að halda áfram að byggja upp WOW air með okkar frábæra teymi, öllum til hagsbóta.“