WOW air búið að ljúka skuldabréfaútboði – náðu 50 milljónum evra

Skuldabréfaútboði WOW air er lokið. 50 milljónir evra hafa þegar verið seldar úr skuldabréfaflokknum en til stendur að selja 10 milljónir evra í viðbót.

Skúli Mogensen Mynd: WOW air
Auglýsing

Skulda­bréfa­út­boði WOW air er lok­ið. Í til­kynn­ingu kemur fram að stærð skulda­bréfa­flokks­ins nemi 60 millj­ónum evra, þar af 50 millj­ónir evra sem þegar hafa verið seldar og 10 millj­ónir evra sem verða seldar fjár­festum í fram­haldi af útboð­inu. Skulda­bréfa­flokk­ur­inn er til þriggja ára og vextir eru níu pró­sent ofan á þriggja mána Euri­bor vexti, en þó aldrei lægri en níu pró­sent skyldu þeir vextir verða nei­kvæð­ir. Auk þess eru lagðar fram ábyrgðir sem eru ekki til­greindar sér­stak­lega.

Þar segir enn frem­ur: „Par­eto Securities hefur fyrir hönd WOW air umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu ásamt Arct­ica Fin­ance. Bréfin verða gefin út með raf­rænum hætti í Vær­dipap­ir­sentra­len ASA í Nor­egi og verða í kjöl­farið skráð til við­skipta í Nas­daq kaup­höll­inni í Stokk­hólmi. Þátt­tak­endur voru bæði inn­lendir og erlendir fjár­fest­ar.“

Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, segir að nið­ur­staðan sé mikil hvatn­ing og þakkar fyrir þann góða stuðn­ing sem félagið hafi fengið í „gegnum þetta ferli sem og öllum þeim sem tóku þátt í útboð­in­u.“

Auglýsing

Sér­stak­lega er tekið fram í til­kynn­ingu frá WOW air að engin við­töl verði veitt að svo stöddu. Engar upp­lýs­ingar eru um hverjir keyptu þau skulda­bréf sem þegar hafa verið seld. 

Ætla að skrá sig á markað

Skúli fór í við­tal við Fin­ancial Times í gær þar sem hann sagði að WOW air ætl­að­i að safna um 200 til 300 millj­­ónum doll­­ara, eða 22 til 33 millj­­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­­út­­­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­­ast í á næstu tveimur árum. 

WOW air hefur ráðið Arion banka og Arct­ica Fin­ance til að hefja und­ir­bún­ing að skrán­ingu hluta­bréfa félags­ins innan 12-18 mán­aða, bæði hér­lendis og erlend­is. Arion banki er einnig á meðal kröfu­hafa WOW air. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent