Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra nýsköpunarmála hefur skipað stýrihóp um mótun heildstæðrar nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Stýrihópurinn fundaði í fyrsta sinn í gær. Þetta kemur fram í frétt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.
Í stýrihópnum eru fulltrúar atvinnulífs, háskóla- og vísindasamfélags, sprota- og tæknifyrirtækja og þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi. Stefnan skal liggja fyrir ekki síðar en 1. maí næstkomandi.
Stýrihópinn skipa eftirfarandi:
- Guðmundur Hafsteinsson, formaður
- Ari Kristinn Jónsson
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
- Davíð Helgason
- Eyjólfur Guðmundsson
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir
- Helga Valfells
- Hjálmar Gíslason
- Inga Sæland
- Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
- Jón Steindór Valdimarsson
- Kristján Hall
- Líneik Anna Sævarsdóttir
- María Bragadóttir
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ragnheiður Magnúsdóttir
- Sigurður Hannesson
- Steinunn Gestsdóttir
- Tryggvi Hjaltason
Samkvæmt fréttinni mun verkefnastjórn fara fyrir stefnumótunarvinnunni. Formaður hennar er Þórlindur Kjartansson. Þórlindur hefur starfað mikið með ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum við samninga- og sölumál. Hann var stjórnarformaður Innovit og einn af stjórnendum hjá Meniga. Verkefnisstjóri er Sigríður Valgeirsdóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Í frétt Kjarnans frá því fyrr í vikunni segir ráðherra að á tímum mikilla breytinga sé öflug og kraftmikil nýsköpun í atvinnulífinu forsenda þess að Íslendingar tryggi góð lífskjör hér á landi til framtíðar.