WOW air greiðir hærri vexti en önnur flugfélög

Bloomberg segir að vextirnir sem WOW air borgar vegna skuldabréfaútgáfu sinnar séu hærri en vextir í útboðum annarra evrópskra flugfélaga sem farið hafa fram á síðustu árum.

wow air
Auglýsing

Vext­irnir sem WOW air greiðir af skulda­bréfum sem fyr­ir­tækið ætlar að gefa út eru þeir hæstu sem nokk­urt flug­fé­lag í Evr­ópu greið­ir, sam­kvæmt frétt Bloomberg.

Þar kemur fram að vaxta­kjörin í nýaf­stöðu skulda­bréfa­út­boði WOW air, sem eru níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euri­bor vexti, séu hærri en vextir voru í útboðum hjá Air Berl­in, Finna­ir,, Norweg­ian Air, Air France, Brit­ish Airways og Luft­hansa sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu 2013 til 2018.

Áður voru hæstu vextir sem evr­ópskt flug­fé­lag hafði sam­þykkt að greiða 8,5 pró­sent í útboði sem Air Berlin fór í árið 2017 þegar fyr­ir­tækið sótti 125 milljón evra með víkj­andi skulda­bréfa­út­gáfu. Air Berlin fór í greiðslu­stöðvun í ágúst í fyrra og hætti starf­semi 27. októ­ber 2017. Önnur flug­fé­lög sem gáfu út skulda­bréf á tíma­bil­inu greiða, sam­kvæmt frétt Bloomberg, 5,1 til 7,9 pró­sent vexti.

Auglýsing

Greint var frá því á þriðju­dag að skulda­bréfa­út­boði WOW air væri lok­ið. Bók þess hafði þá verið opin frá því í lok ágúst. Í til­­kynn­ingu kom fram að stærð skulda­bréfa­­flokks­ins nemi 60 millj­­ónum evra, þar af 50 millj­­ónir evra sem þegar hafa verið seldar og 10 millj­­ónir evra sem verða seldar fjár­­­festum í fram­haldi af útboð­inu.

Skulda­bréfa­­flokk­­ur­inn er til þriggja ára og vextir eru, líkt og áður sagði, níu pró­­sent ofan á þriggja mána Euri­bor vexti, en þó aldrei lægri en níu pró­­sent skyldu þeir vextir verða nei­­kvæð­­ir. Auk þess voru lagðar fram ábyrgðir sem eru ekki til­­­greindar sér­­stak­­lega.

Greint var frá því að þátt­tak­endur væru bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar en ekki hefur verið greint frá því hverjir þeir eru.

WOW air hefur ráðið Arion banka og Arct­ica Fin­ance til að hefja und­ir­­bún­­ing að skrán­ingu hluta­bréfa félags­­ins innan 12-18 mán­aða, bæði hér­­­lendis og erlend­­is. Arion banki er einnig á meðal kröf­u­hafa WOW air. Bank­inn vill ekki upp­lýsa um hvort að hann sjálf­ur, eða sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefn­ir, hafi tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu hjá WOW air.

Í við­tali við Fin­ancial Times sem birt­ist síð­ast­lið­inn mánu­dag sagði Skúli Mog­en­sen að WOW air ætl­­að­i að safna um 200 til 300 millj­­­ónum doll­­­ara, eða 22 til 33 millj­­­örðum íslenskra króna, í nýtt hlutafé í hluta­fjár­­­út­­­­­boði sem fyr­ir­tækið ætlar að ráð­­­ast í á næstu tveimur árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent