Niðurgreiðslur á póstsendingum milli landa að sliga Íslandspóst

Alþjóðasamningar um kostnaðarþátttöku í póstsendingum eru Íslandspósti og ríkisjóði dýrir.

img_3075_raw_1807130200_10016381175_o.jpg
Auglýsing

Rekja má stór­an hluta af tapi Ís­lands­pósts til­ ­nið­ur­greiðslna ­fyr­ir­tæk­is­ins á er­lendum póst­send­ing­um en ­kostn­að­ur­inn hleypur á hund­ruð­u­m millj­óna. 

Þetta segir Ingi­mund­ur ­Sig­ur­páls­son, ­for­stjóri Íslands­pósts, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag en ­fyr­ir­tæk­inu er skylt sam­kvæmt alþjóða­samn­ing­i (Uni­ver­sal Postal Union) að greiða 70-80% af kostn­að­i ­póst­send­inga frá þró­un­ar­lönd­um, þar á meðal Kína.

Rík­is­sjóður veitti Íslands­pósti lán á dög­unum til að mæta tap­rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Ingi­mundur að það megi að rekja tapið að miklu leyti til fyrr­nefndra nið­ur­greiðslna. Í til­kynn­ingu vegna lán­veit­ing­ar­inn­ar, segir að þurfa ein­fald­lega að veita fyr­ir­tæk­inu meira fé svo það geti haldið áfram rekstri. „Ís­lands­­póstur þarf á fjár­­­magni að halda til að við­halda rekstr­­ar­fjár­­munum sem og til að styrkja lausa­­fjár­­­stöðu félags­­ins. Þrátt fyrir aukna lán­­töku und­an­farin ár er þörf á meira lausa­­­fé, allt að 500 millj­­ón­um, til að standa undir skuld­bind­ingum næstu mán­uð­ina og fyr­ir­­sjá­an­­legum tap­­rekstri á yfir­­stand­andi ári, meðal ann­­ars vegna mik­illar fækk­­unar bréfa, og hefur félagið leitað til rík­­is­ins um fyr­ir­greiðslu vegna þess.“

Auglýsing

Íslands­­­póstur er að fullu í eigu rík­­is­ins og hefur félagið rekstr­­ar­­leyfi frá Póst- og fjar­­skipta­­stofnun sem kveður á um að það fari með einka­rétt rík­­is­ins til að sinna póst­­­þjón­­ustu. Þar er átt við póst­­­send­ingar bréfa allt að 50 grömm­um, auk þess sem félagið sinnir alþjón­­ustu fyrir hönd rík­­is­ins til að tryggja öllum lands­­mönnum aðgang að póst­­­þjón­­ustu með skil­­greindum gæðum og á við­ráð­an­­legu verði. Nær alþjón­ust­u­­skyldan til send­inga allt að 20 kg. Í til­­kynn­ingu fjár­­­mála­ráðu­­neyt­is­ins segir að lán­veit­ingin tryggi tíma­bundið mög­u­­leika félags­­ins til að standa undir þessum skyld­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent