Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lokið rannsókn á ríkisábyrgðum á afleiðusamningum Landsvirkjunar en stofnunin telur að samningarnir hafi ekki falið í sér ríkisaðstoð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA.
„Landsvirkjun er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og einn stærsti framleiðandi endurnýjanlegrar raforku í Evrópu. Í samningum um stóriðju er fyrirtækið í samkeppni við aðra framleiðendur í Evrópu. Til að verjast gengis- og vaxtaáhættu í skuldasafni sínu gerði Landsvirkjun ýmiss konar afleiðusamninga sem íslenska ríkið gekk í ábyrgð fyrir,“ segir í tilkynningunni.
ESA hóf rannsókn á ríkisábyrgðunum í maí árið 2017 með það að markmiði að kanna hvort þær væru í samræmi við EES-reglur um ríkisstyrki. Könnun ESA laut að því hvort Landsvirkjun nyti efnahagslegs ávinnings af ríkisábyrgðinni eða hvort endurgjaldið fyrir hana væri á markaðskjörum.
Rannsóknin hefur nú leitt í ljós að ábyrgðirnar á afleiðusamningum Landsvirkjunar leiddu ekki til efnahagslegs ávinnings fyrir fyrirtækið og er málinu því lokið að hálfu ESA, segir í tilkynningunni.