Vildi láta rannsaka söluna á Bakkavör

Fulltrúi Bankasýslu ríkisins vildi láta rannsaka söluna á Bakkavör en meirihluti stjórnarinnar lagðist gegn því.

bakkavör 3.11.2017
Auglýsing

Full­trúi Banka­sýslu rík­is­ins í Arion banka krafð­ist þess í des­em­ber í fyrra að inn­ri end­ur­skoð­anda Arion ­banka yrði falið að ­gera form­lega athug­un á sölu bank­ans á hlut sínum í breska mat­væla­fram­leið­and­anum Bakka­vör þar sem stærstu eig­endur eru Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir. 

Meiri­hluti stjórnar bank­ans hafn­aði hins vegar til­lögu Kirstín­ar Þ. Flygenring, þáver­andi full­trú­a ­Banka­sýsl­unnar í stjórn bank­ans, þess efnis á fundi sínum í des­em­ber ­síð­ast­liðn­um. 

Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag. Er meðal ann­ars vitnað til minn­is­blaðs um þessi mál, sem blaðið fékk afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga. 

Auglýsing

Er það mat Banka­sýslu rík­is­ins að rík­is­sjóður hafi tapað 2,6 millj­örðum króna vegna þess hvernig staðin var að söl­unni, í gegnum óbeinan eign­ar­hlut sinn í Arion banka. Er tekið fram í minn­is­blað­inu að þetta sé svipuð fjár­hæð og talið sé að rík­is­sjóður hafi orðið af vegna sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í Borg­un, en ennþá er deilt um þau við­skipti fyrir dóm­stólum

Banka­sýslan skrif­aði Bjarna Bene­dikts­syni minn­is­blað vegna þessa og var það sent 15. jan­úar síð­ast­lið­inn. 

„Í minn­is­blað­inu, sem Mark­að­ur­inn ­fékk afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á grund­velli ­upp­lýs­inga­laga, er jafn­framt upp­lýst um að Guð­rún Johnsen, þáver­and­i vara­for­maður stjórnar Arion banka, hafi á stjórn­ar­fundi bank­ans í nóvem ber 2015 greitt atkvæði gegn ­söl­unni í Bakka­vör. Hún lagði síð­an til á fundi stjórnar þann 14. nóv­em­ber í fyrra að gerð yrði könnun á sölu­ferli eign­ar­hlut­ar­ins. Sú til­laga var felld og degi síðar var Guð­rún­u tjáð að „breyt­ingar væru fyr­ir­hug­að­ar á stjórn bank­ans og [henn­ar] að­komu væri ekki óskað“, eins og það er orðað í minn­is­blað­in­u,“ segir meðal ann­ars í umfjöllun Mark­að­ar­ins.

Gengið var frá sölu eign­ar­halds­fé­lags­ins BG12 á 45,9 pró­senta hlut í Bakka­vör í jan­úar árið 2016 en ­Arion banki fór með 62 pró­senta hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu. Aðr­ir ­eig­endur BG12 voru aðal­lega líf­eyr­is­sjóð­ir, eins og til dæmis Líf­eyr­is­sjóð­ur­ versl­un­ar­manna sem átti 14,3 pró­senta hlut og Gildi með­ 11,6 pró­senta hlut. Kaup­endur að hlutnum voru bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, stofn­end­ur Bakka­var­ar, en þeir áttu fyrir um 38 pró­sent í mat­væla­fram­leið­and­an­um, og banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Baupost. Var kaup­verð­ið ríf­lega 147 millj­ónir punda.

Ítar­lega hefur verið fjallað um þessi við­skipti á vef Kjarn­ans, en Bakka­var­ar­bræð­ur, Ágúst og Lýð­ur, er nú metnir á um 100 millj­arða og voru settir númer 197 yfir rík­asta fólk Bret­lands, á nýlegum lista The Sunday Times.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent