Segir sænska kollega viðra þá hugmynd að horfa til íslenska ríkisstjórnarmódelsins

Sigurður Ingi Jóhannsson segir Svía sem hann hefur rætt við spyrja sig hvort íslenska ríkisstjórnarmódelið gæti gengið þar í landi.

Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að stjórn­ar­sam­starfið gangi vel, þótt það sé mjög óvenju­legt. „Að ein­hverju leyti finnst mörgum hér­lendis of mikið gert úr því hversu óvenju­legt það er. En það er það óvenju­legt að núna í sam­skiptum við erlenda kollega mína þá spyrja þeir bara hvernig er þetta hægt?“

Þetta kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, við Sig­urð Inga í þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var í gær­kvöldi.

Sitj­andi rík­is­stjórn sam­anstendur af Vinstri græn­um, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki og teygir sig því frá vinstri ás stjórn­mál­anna, yfir miðj­una og til þess flokks sem skil­greinir sig lengst til hægri. Aldrei áður hefur verið mynduð sam­bæri­leg rík­is­stjórn hér­lendis og Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur hafa lengst af skil­greint sig sem algjörar and­stæður í stjórn­mál­um. Rík­is­stjórnin var mynduð eftir kosn­ingar þar sem átta stjórn­mála­flokkar náðu inn á þing og engin sýni­leg rík­is­stjórn eftir hefð­bundnu mynstri var í kort­un­um.

Auglýsing

Sam­bæri­leg staða er uppi í Sví­þjóð, þar sem rauð­græna blokkin fékk 144 þing­menn og banda­lag mið- og hægri­flokka 143. Sví­þjóð­ar­demókrat­ar, sem flokkar innan beggja blokka þvertóku fyrir að vinna með fyrir kosn­ing­ar, fengu 62 þing­sæti. Því er uppi sú staða að annað hvort þarf önnur blokkin að sækj­ast eftir stuðn­ingi Sví­þjóð­ar­demókrata þvert á yfir­lýs­ingar fyrir kosn­ing­ar, eða þær þurfa að brjóta sig upp og finna nýjar leiðir til að mynda stjórn.

Sig­urður Ingi seg­ist hafa heyrt á kol­legum sínum í Sví­þjóð, vegna þeirrar stöðu sem upp var komin eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Þeir segi: „Við erum í tómum vand­ræðum hér í Sví­þjóð. Kannski ættum við að horfa á íslenska mód­el­ið.“

Þótt að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé óvenju­legt telur Sig­urður að það sé býsna gott. Auð­vitað komi upp mál sem þurfi að finna lausnir á og gera mála­miðl­an­ir. Honum finnst þó ganga vel að takast á við þau. „Ég er bjart­sýnn á það lof­orð sem ég gaf mörgum kjós­endum að ef ég færi í rík­is­stjórn þá myndi hún halda út kjör­tíma­bil­ið.“

Í þætt­inum ræðir Sig­urður Ingi einnig ítar­lega um sam­göngu­á­ætl­un, stöðu flug­fé­lag­anna á Íslandi, þjóð­hags­lega mik­il­væg fyr­ir­tæki og stjórn­mál almennt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent