Hvort trúir þú Ford eða Kavanaugh?

Spennuþrungnar yfirheyrslu fyrir nefnd Bandaríkjaþings vegna skipans Brett M. Kavanaugh í Hæstarétt, munu draga dilk á eftir sér.

Ford
Auglýsing

Christine Bla­sey Ford, doktor í sál­fræði og pró­fessor við Uni­versity of Palo Alto og Stan­ford í Kali­forn­íu, segir Brett M. Kavan­augh, sem Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur þegar útnefnt sem dóm­ara við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna, hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega þegar þau voru á mennta­skóla­aldri. 

Hún greindi sál­fræð­ingi sínum frá atvik­inu árið 2012 og manni sínum einnig. Hún seg­ist ekki hafa getað rætt um atvikið árum saman eftir að það kom upp, og sagði frammi fyrir þing­nefnd í dag að hún væri 100 pró­sent viss um að það hefði verið Brett Kavan­augh sem braut gegn henn­i. 

Ford sak­ar Kav­an­augh um að hafa reynt að af­­klæða hana, að hafa haldið henni fang­inni ásamt öðrum manni, og káfað á henni þegar hún var 15 ára og hann 17 ára, árið 1982. 

Auglýsing

Í kjöl­far þess að Ford greindi frá reynslu sinni eft­ir að til­­kynnt var að hann kæmi til greina sem dóm­­ari við Hæsta­rétt Banda­­ríkj­anna hafa tvær kon­ur til við­bót­ar stigið fram.

Ford sagði atvikið hafa markað líf sitt, og haft mikil and­leg og lík­am­leg áhrif á hana. Hún muni enn hlátur þeirra sem brutu gegn henni, og það sitji fast í minn­ingu henn­ar. 

Kavan­augh kom einnig fyrir þing­nefnd­ina og neit­aði með öllu að hafa brotið gegn henni, og sagð­ist ekk­ert hafa fela. Hann hafi á ferli sínum marg sinnis verið rann­sak­aður af FBI, meðal ann­ars þegar hann starfi fyrir George W. Bush í Hvíta hús­inu og sem dóm­ari við alrík­is­dóm­stól. 

„Þetta hefur tætt fjöl­skyldu mína í sund­ur,“ sagði Kavan­augh, með tárin í aug­un­um, en hann hann var í miklu upp­námi meðan hann las upp yfir­lýs­ingu sína. Hann vitn­aði í sínar eigin dag­bæk­ur, máli sínu til stuðn­ings, og sagði frá­sögn Ford ekki passa við það sem hann hefði skrá­sett. Hann hefði ekki verið í sam­kvæmi með Ford þessa helgi sem hún hefði nefnt, og dag­bæk­urnar sýndu það. 



Ford var stað­föst í sínum vitn­is­burði og sagð­ist ekki efast um að það var Kavan­augh sem braut gegn henni en ekki ein­hver ann­ar. 

Miklar til­finn­ingar voru meðal þing­nefnd­ar­manna. Úr hópi Repúblik­ana mátti heyra, að þeir trúðu frekar Kavan­augh og lét einn þeirra þau orð falla að þetta væri lík­lega sví­virði­leg­asta árás sem sést hefði í stjórn­málum nokkru sinni í Banda­ríkj­un­um. 

Demókratar sögðu ekki vera hægt að trúa frekar Kavan­augh en Ford, bara vegna þess að hann benti á dag­bækur sín­ar. Það þyrfti meira til, og það væri heldur ekki hægt að slá trú­verð­ugan fram­burð Ford útaf borð­in­u. 

Hún hefði líka gengið í gegnum mikla erf­ið­leika og fjöl­skylda henn­ar, vegna þeirrar ákvörð­unar hennar að stíga fram og segja frá brot­inu gegn henn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent