Útgerðarfyrirtækið Jakob Valgeir í Bolungarvík hefur sex mánuði til að leiðrétta stöðu sína í krókaaflamarki, en hlutdeild fyrirtækisins er verulega umfram leyfilegt hámark, að því er fram kemur á heimasíðu Fiskistofu.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.
Fyrirtækið ræður yfir 6,42% krókaaflahlutdeildar, en leyfilegt hámark er 5%. Í þorski er fyrirtækið með 6,08% hlutdeild og 7,77% í ýsu, en hámarkið er 4% í þorski og 5% í ýsu.
Í næstu sætum í krókaaflamarki á eftir Jakobi Valgeiri eru Grunnur í Hafnarfirði með 4,6% og Einhamar Seafood með 4,1% hlutdeild.
Miðað er við að heildaraflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra eða tengdra aðila fari ekki yfir 12% af samanlögðu heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.