Sækja um einkaleyfi á Off Venue á Airwaves

Iceland Airwaves ehf. hefur sótt um einkaleyfi á vörumerkinu Iceland Airwaves Off Venue. Fáist leyfið verður ekki hægt að halda Off Venue viðburði með nafninu Iceland Airwaves án samþykkis Senu.

h_53876999.jpg Iceland Airwaves 2017
Auglýsing

Iceland Airwa­ves ehf. hefur sótt um einka­leyfi á vöru­merk­inu Iceland Airwa­ves Off Venue. Með­fram tón­list­ar­há­tíð­inni Iceland Airwa­ves, sem haldin er í Reykja­vík á haustin á ári hverju, hafa verið haldnir við­burðir undir „Off Venue“ heit­inu, eða það sem myndi kall­ast utan form­legs vett­vangs hátíð­ar­inn­ar. Tón­leikar sem haldnir eru Off Venue eru þá í raun aldrei hluti af form­legu hátíð­ar­haldi, heldur minni við­burðir sem haldnir eru sjálf­stætt sam­hliða form­legum stór­há­tíð­um. Ekki er heldur rukkað inn á Off Venue við­burði. Í sjálfu sér er hug­takið Off Venue því þess eðlis að það að ætla að gera það lög­form­lega að hluta að hátíð er ákveðin þver­sögn.

Skjáskot: Einkaleyfastofa.

Nýr fram­kvæmda­stjóri hátíð­ar­innar og for­stjóri Senu Live, Ísleifur Þór­halls­son, lét hafa eftir sér í útvarps­þætt­inum Harma­geddon í febr­ú­ar, að end­ur­skoða þyrfti Off Venue fyr­ir­komu­lag hátíð­ar­innar ef hún ætti að geta lifað áfram.

Auglýsing

Ísleifur sagði að gíf­ur­leg aukn­ing hefði orðið á Off Venue hluta Iceland Airwa­ves en hljóm­sveitir sem bók­aðar eru á hátíð­ina hafi einnig verið að spila á Off Venue við­burð­um. Ísleifur sagði að með þessu fyr­ir­komu­lagi væri búið að kenna fólki að það geti upp­lifað lang­flesta af þeim tón­list­ar­mönnum sem eru á Airwa­ves án þess að borga sig inn á hátíð­ina.

Fáist vöru­merkið skráð verður hægt að banna öðrum að nota Iceland Airwa­ves Off Venue ein­hvers staðar þar sem verið er að selja veit­ing­ar, eða í raun og veru á öllum tón­leika­stöð­u­m. 

Tölu­verð umræða skap­að­ist um breytt fyr­ir­komu­lag í Off Venue við­burða­haldi á Face­book­síðu tón­list­ar­manns­ins Svav­ars Knúts fyrr í þessum mán­uði, þar sem hann greindi meðal ann­ars frá því að Sena Live hafi hækkað gjaldið fyrir þátt­töku Off Venu tón­leika­staða á Iceland Airwa­ves úr 50 þús­und krónum í 500 þús­und krónur á hvern tón­leika­stað, en fyrir þá fjár­hæð kom­ast við­burð­irnir til dæmis inn á aug­lýsta dag­skrá Airwa­ves hátíð­ar­inn­ar. Auk þess sem Sena geri kröfu um hlut af áfengs­is­sölu hvers tón­leika­stað­ar. Svavar segir þetta ekki réttu leið­ina til að hátíðin rétti úr kútnum að hans mati en Svavar hefur und­an­farið valið að spila frekar Off Venue heldur en á hátíð­inni sjálfri þar sem honum líður eins og hann eigi heima.

Svavar Knútur tekur það ítrekað fram að honum þyki vænt um hátíð­ina og að hún sé mikil lyfti­stöng fyrir íslenskt lista­fólk.

Ísleifur Þór­halls­son fram­kvæma­stjóri Senu Live veitti Kjarn­anum ekki við­tal um málið þrátt fyrir ítrek­aðar til­raun­ir.

Mér finnst Iceland Airwa­ves æðis­leg hátíð og á henni átti ég tvær af bestu tón­leika­upp­lif­unum ævi minn­ar; í...

Posted by Svavar Knútur on Wed­nes­day, Sept­em­ber 5, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent