Off venue-tónleikastöðum fækkar til muna

Off Venue-tónleikastöðum fækkar í ár úr 60 í 25 vegna hærra gjalds en það mun hækka úr 60 þúsund krónum í 500 þúsund krónur fyrir alla helgina.

airwaves-2014_15546692930_o.jpg
Auglýsing

Off venu­e-tón­leik­stöðum hefur verið fækkað úr sex­tíu í tutt­ugu og fimm á Iceland Airwa­ves í ár. Þetta stað­festir Ísleifur Þór­halls­son, nýr fram­kvæmd­ar­stjóri Iceland Airwa­ves og for­stjóri Senu Live, í sam­tali við Kjarn­ann. Greiðslan hefur jafn­framt verið hækkuð fyrir að halda Off Venu­e-tón­leika úr 60 þús­und krónur fyrir alla helg­ina í 500 þús­und krón­ur.

Í nýja fyr­ir­komu­lag­inu hjá Iceland Airwa­ves verða tón­leika­staðir sem halda vilja Off Venu­e-við­burði rukk­aðir um dags­gjald sem fer hækk­andi er nær dregur helg­inni. Að halda Off Venu­e-við­burð á mið­viku­deg­inum kostar 50 þús­und krón­ur, á fimmtu­deg­inum 100 þús­und krón­ur, föstu­deg­inum 150 þús­und krónur og á laug­ar­deg­inum 200 þús­und krón­ur. 

Þetta þýðir að ef ákveð­inn tón­leika­staður vill halda halda Off Venu­e-við­burði hjá sér yfir alla hátíð­ina þá þarf að hann að greiða 500 þús­und krón­ur. Ísleifur tekur þó fram að þeir geri sér­samn­inga við staði sem eru ekki reknir í hagn­að­ar­skyni en eng­inn grein­ar­munur hafi verið gerður á milli staða, stærð þeirra eða hvernig staðir voru reknar síð­ustu ár.

Auglýsing

Ís­leifur segir að inni­falið í þessu gjaldi sé að Off Venu­e-tón­leika­stað­irnir og dag­skráin er kynnt sem hluti af hátíð­inni. Það séu þó ákveðnar reglur um tón­leika­hald Off Venu­e-tón­leika, til dæmis að lista­menn sem spila einnig á hátíð­inni sjálfri megi ekki spila á Off Venu­e-tón­leikum sama dag. 

Hann tekur það jafn­framt fram að Off Venu­e-­dag­skráin sé mik­il­vægur og skemmti­legur hluti af hátíð­inni en fækkun tón­leika­staði sé hluti af því ferli nýrra eig­andi í að end­ur­skipu­leggja hátíð­ina með það að mark­miði að rétta úr kútnum og halda hátíð­inni gang­andi. En sam­kvæmt Ísleifi hefur fjöldi Off Venu­e-við­burða haft mikil áhrif á miða­sölu hátíð­ar­innar síð­ustu ár og í raun verið mjög slig­andi fjár­hags­lega fyrir hátíð­ina.

Nýir eig­endur Iceland Airwa­ves von­ast til að með þessum breyt­ingum mun fleiri miðar selj­ast á hátíð­ina. Í ár mun eitt arm­band veitir aðgang inn á alla við­burði hátíð­ar­inn­ar, ólíkt fyrri árum. Ísleifur segir að mark­miðið sé að auka virði arm­bands­ins og sé það gert með því að fækka Off Venu­e-­stöðum en í stað þess mun hátíðin sjálf standa fyrir sér­stökum við­burðum yfir helg­ina. Ísleifur leggur áherslu á, í sam­tali við Kjarn­ann, hversu alvar­lega þeir taki nýja hlut­verki sínu sem eig­endur Iceland Airwa­ves. Hann segir hátíð­ina gríð­ar­lega mik­il­væga fyrir íslenska tón­list­ar­senu, sem og Reykja­vík­ur­borg. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent