Ólöf Arnalds safnar fyrir útgáfu fimmtu breiðskífu sinnar

Fyrsta plata Ólafar Arnalds frá árinu 2014 er í burðarliðnum. Hún er búin að semja lögin fyrir hana en safnar fyrir upptöku og útgáfu hennar á Karolina fund. Nýja platan mun heita „Tár í morgunsárið“ og verður á íslensku.

Ólöf Arnalds.
Ólöf Arnalds.
Auglýsing

Ólöf Arn­alds hóf sól­ó­feril sinn með hinni róm­uðu „Við og við.“ Á erlendri grundu var „Við og við“ valin ein af bestu plöt­u­m árs­ins af Paste Mag­azine og eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta ára­tug­ar­ins. Ólöf hefur síðan gefið út plöt­urnar Inn­undir skinni, Sudden Elevation og Palme. Hún hefur leikið á tón­leikum víðs­vegar um Evr­ópu, Banda­ríkin og Ástr­alíu og komið fram í útvarpi og sjón­varpi. Fjöldi erlendra miðla hafa fjallað um Ólöf­u og verk henn­ar. Mætti þar nefna The New York Times, The Guar­di­an, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut.

Hún hefur nú samið öll lögin sem eiga að vera á fimmtu breið­skífu henn­ar, sem mun bera nafnið „Tár í morg­unsárið“ og verður á íslensku. Ólöf safnar nú fyrir upp­töku hennar á Karol­ina Fund. 

Auglýsing
Ólöf seg­ist ekk­ert geta gert að því að þurfa alltaf að vera að búa til tón­list. „Það eru nokkur ár liðin frá útgáfu síð­ustu plöt­unnar minnar svo það voru mjög mörg lög og textar búin að hlað­ast upp. Ég er svo heppin að hafa fengið tæki­færi til að vinna í Sund­laug­inni hljóð­veri á ný. Við og við var hljóð­rituð þar og Inn­undir skinni, svo þetta er svo­lítið eins og að koma heim. Ég er byrjuð taka upp þar núna. Ég varð bara að fá leyfi frá Kjart­ani Sveins­syni til að byrja að tappa ein­hverju af þessu efni af. Svo það er eins gott að ég nái mark­in­u.“

Að sögn Ólafar eru yrk­is­efni hennar yfir­leitt mjög per­sónu­leg. „Ég hef eig­in­lega aldrei kunnað neitt ann­að. Gítar og rödd verða í aðal hlut­verki en svo verða líka önnur hljóð­færi þar sem mig langar og þar verða vel valdir hljóð­færa­leik­arar í hverju rúmi.“

Hún segir að á nýju plöt­unni sé hún á ein­hvern hátt að snúa aftur heim. „Text­arnir verða á íslensku og upp­tök­urnar í Sund­laug­inn­i. Ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir góðar við­tökur núna strax í byrjun söfn­un­ar­innar og vona að það haldi áfram að ganga svona vel!“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk