Fordómar lögreglu, trúðar í Mosfellsbæ, kynferðisbrot valdamanna og Helgi Seljan

Mest lesnu fréttir ársins 2022 sýndu fjölbreytt áhugasvið lesenda. Flestar mest lesnu fréttirnar eiga það sameiginlegt að þær snúast um hluti sem einhver gerði, ákvað eða fann fyrir.

fréttir ársins20221
Auglýsing

5. Vítalía um frá­far­andi for­stjóra Festi: „Ég á Egg­erti mikið að þakka“

„Ég á Egg­erti mikið að þakka og ég vona að hann viti það,“ sagði Vítalía Laz­­areva í færslu á Twitt­er. Í færsl­unni birti hún hlekk á umfjöllun Mann­lífs þar sem ýjað er að því að nokkuð óvænt tíð­indi um starfs­­lok Egg­erts Þórs Krist­ó­­fer­s­­son­­ar, for­­stjóra Festi, í júní teng­d­ust frá­­­sögn Vítalíu af kyn­­ferð­is­of­beldi í jan­úar þar sem hún sagði sig hafa orðið af hendi þriggja manna.

Einn þeirra, Þórður Már Jóhann­es­­son, var stjórn­­­ar­­for­­maður Festi.

Lestu frétt­ina í heild hér.

Auglýsing

4. Helgi Seljan búinn að segja upp – RÚV á ekki að þurfa að stilla upp í vörn

Helgi Selj­an, sem hafði starfað hjá frétta­­skýr­inga­þætt­inum Kveik hjá RÚV árum saman og þar áður hjá Kast­­ljósi, sagði upp störf­um í jan­ú­ar. Hann réð sig í kjöl­farið sem rann­sókn­ar­rit­stjóra Stund­ar­inn­ar.

Í stöð­u­­upp­­­færslu sem Helgi birti inni lok­uðu vef­­svæði starfs­­manna RÚV, þar sem hann greindi frá ákvörð­un­inni, sagði hann að hún hafi hvorki tekin í skyndi eða af neinni vonsku. „Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburð­­ar­rás und­an­far­inna mis­s­era hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfir­­­leitt fór að velta þessum mög­u­­leika fyrir mér.“

Lestu frétt­ina í heild hér.

3. Kallar sig­ur­veg­ara í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Mos­fellsbæ trúða og segir sig úr flokknum

Fram­bjóð­andi sem sótt­ist eftir þriðja sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga fyrr á árinu sagði sig­ur­veg­ara próf­kjörs­ins hafa smalað atkvæð­um.

Hún sagði skilið við flokk­inn – „Ég þarf ekki lengur að starfa með þessum tveimur trúð­u­m.“

Lestu frétt­ina í heild hér.

2. Ragnar Þór: Allir vissu en ekk­ert var aðhafst fyrr en málið komst í fjöl­miðla

Í byrjun árs ásak­aði Vítalía Laz­areva þrjá valda­menn í íslensku við­skipta­lífi um kyn­ferð­is­brot. Kjarn­inn leit­aði álits Ragn­ars Þórs Ing­ólfs­son­ar, for­manns VR stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, á mál­inu.

Hann sagði að íslenskt sam­fé­lag væri „óþol­andi með­virkt“ og að oft væri horft fram­hjá alvar­legum málum ef þau kom­ast ekki í almenna umræðu eða fara á for­síðu frétta­miðla. Líf­eyr­is­­sjóð­ir, stærstu fjár­festar lands­ins, virt­ust ekki hafa mik­inn hvata til að leita réttar síns ef grunur léki á brot­­legri eða sið­­lausri hátt­­semi stjórn­­enda fyr­ir­tækja sem þeir fjár­­­festa í, þrátt fyrir fag­­ur­gala um sið­­ferð­is­við­mið og alþjóð­­leg sam­­fé­lags­­leg við­mið.

Lestu frétt­ina í heild hér.

1. „Ekk­ert annað en for­dóm­ar“

Lög­reglan hafði afskipti af 16 ára dreng í annað sinn á tveimur dögum þann 21. apríl vegna leitar að stroku­fanga. Í þetta skiptið var hann að kaupa bakk­elsi með móður sinni, mann­rétt­inda­lög­mann­inum Claudiu Wil­son.

Hún sagði í sam­tali við Kjarn­ann að þetta væri ekk­ert annað en áreiti úr hendi lög­regl­unn­ar. Hún tók upp atvikið sem um ræð­ir.

Lestu frétt­ina í heild hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk