Kallar sigurvegara í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Mosfellsbæ trúða og segir sig úr flokknum

Frambjóðandi sem sóttist eftir þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ segir sigurvegara prófkjörsins hafa smalað atkvæðum. Hún hefur sagt skilið við flokkinn – „Ég þarf ekki lengur að starfa með þessum tveimur trúðum.“

Kristín Ýr Pálmarsdóttir, sem sóttist eftir 3. sæti Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Mosfellsbæ, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir sigurvegara í prófkjörinu hafa smalað atkvæðum.
Kristín Ýr Pálmarsdóttir, sem sóttist eftir 3. sæti Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Mosfellsbæ, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir sigurvegara í prófkjörinu hafa smalað atkvæðum.
Auglýsing

Ásgeir Sveins­son sigr­aði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ sem fram fór í gær. Ásgeir hlaut 697 atkvæði eða 69% gildra atkvæða þegar öll atkvæði höfðu verið tal­in. Í öðru sæti var Jana Katrín Knúts­dóttir og Rúnar Bragi Guð­laugs­son hafn­aði í þriðja.

Kristín Ýr Pálm­ars­dótt­ir, sem sótt­ist eftir þriðja sæti á lista flokks­ins í bæn­um, segir Ásgeir, Rúnar og fleiri hafa smalað atkvæð­um. Í færslu sem hún birti á Face­book-­síðu sinni í gær­kvöldi þegar úrslit voru kunn segir hún að fólk sem láti ekki kjósa sig af eigin verð­leikum heldi smali fólki í kringum sig sé með minni­mátt­ar­kennd. Slíkt fólk er ekki leið­togar í hennar huga. Kristín er vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ en hefur nú sagt sig úr flokkn­um. „Ég er búin að segja síðan í nóv­em­ber að svona yrðu úrslitin við mitt fólk eftir að hafa unnið með þeim í 4 ár,“ segir Kristín í færslu sinni.

Auglýsing

Kol­brún G. Þor­steins­dótt­ir, sem sótt­ist eftir odd­vita­sæti í próf­kjör­inu, segir í athuga­semd við færslu Krist­ínar að hún ætli ekki að kjósa flokk­inn í vor. Kol­brún hafn­aði í fjórða sæti í próf­kjör­inu en hún hefur setið í bæj­ar­stjórn frá 2014.

Kristín segir það jákvæða sem kom út úr nið­ur­stöðu próf­kjörs­ins sé að hún þurfi ekki lengur að „starfa með þessum tveimur trúð­um“ og á hún þá að öllum lík­indum við Ásgeir sem varð í fyrsta sæti og Rúnar Braga Guð­laugs­son sem varð í þriðja sæti.

Smöl­unin hjá Ásgeiri,Run­ari og Co gekk eft­ir, fólk sem lætur ekki kjósa sig af eigin verð­leikum heldur smalar fólki í...

Posted by Kristín Ýr Pálm­ars­dóttir on Sat­ur­day, Febru­ary 5, 2022

Har­aldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri í Mos­fells­bæ, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu í bæj­ar­stjórn. Eftir úrslit próf­kjörs­ins í gær er ljóst að Ásgeir, sem er bæj­ar­full­trúi í Mos­fells­bæ, for­maður bæj­ar­ráðs og skipu­lags­nefnd­ar, verður bæj­ar­stjóra­efni flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor.

Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs, varð í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.

Úrslit próf­kjörs­ins voru þessi:

Í fyrsta sæti er Ásgeir Sveins­son með 697 atkvæði með 69% gildra atkvæða.

Í öðru sæti er Jana Katrín Knúts­dóttir með 380 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 37,6% gildra atkvæða

Í þriðja sæti er Rúnar Bragi Guð­laugs­son með 429 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 3. sæti eða 42,5% gildra atkvæða.

Í fjórða sæti er Kol­brún G. Þor­steins­dóttir með 412 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 4. sæti eða 40,8% gildra atkvæða.

Í fimmta sæti er Hjörtur Örn Arn­ar­son með 477 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 5. sæti eða 47,2% gildra atkvæða.

Í sjötta sæti er Arna Haga­líns­dóttir með 437 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 6. sæti eða 43,3% gildra atkvæða.

Í sjö­unda sæti er Hilmar Stef­áns­son með 497 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 7. sæti eða 49,2% gildra atkvæða.

Alls greiddu 1.044 atkvæði í próf­kjör­inu. Gild atkvæði eru 1.010. Auð og ógild atkvæði eru 34.

Upp­fært 7. febr­ú­ar: Í gær­kvöldi, sunnu­dags­kvöld, virt­ist sem færsla Krist­ínar hefði verið fjar­lægð af Face­book en svo er ekki. Færslan er opin og öllum aðgengi­leg.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent