Árni Pétur segir af sér sem forstjóri Skeljungs

Árni Pétur Jónsson hefur sagt upp störfum sem forstjóri Skeljungs eftir að honum hafi verið tjáð að hann hafi gengið yfir mörk samstarfskonu sinnar.

Árni Pétur Jónsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs.
Árni Pétur Jónsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs.
Auglýsing

Árni Pétur Jóns­son hefur óskað eftir því að láta af störfum sem for­stjóri Skelj­ungs. Þetta greinir hann frá í frétta­til­kynn­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla fyrr í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir Árni Pétur að honum hafi borist tölvu­póstur frá fyrrum sam­starfs­konu hans í öðru fyr­ir­tæki, þar sem hann var yfir­maður hennar fyrir um 17 árum síð­an. „Þar greinir hún frá því að í dag upp­lifi hún sam­skipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk,“ bætir hann við.

Hann segir að konan hafi ekki sakað hann um ofbeldi, áreiti eða ein­hvers konar brot gegn lög­um, heldur hafi verið um að ræða valda­ó­jafn­vægi og ald­urs­mun.

Auglýsing

„Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brot­legur við lög þá átta ég mig á því að við­mið og við­horf hafi breyst í sam­fé­lag­inu og er það vel,“ segir Árni Pétur í til­kynn­ingu sinni. „Met ég stöð­una þannig að mál þetta kunni að valda fyr­ir­tæk­inu og sam­starfs­fólki óþæg­ind­um. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem for­stjóri hjá Skelj­ungi hf.“

Árni Pétur var ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs í ágúst 2019. Hann var for­stjóri Teymis hf þegar það var skráð í Kaup­höll Íslands auk þess sem hann starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri hjá Olís og Hög­um. Hin síð­ari ár hefur Árni Pétur verið for­stjóri Tíu Ell­efu (10-11)/Iceland Verslun (Iceland) og Basko, en seldi hlut sinn 2016.

Árni hefur setið í stjórnum ýmissa fyr­ir­tækja, svo sem Lyfju, Securitas, Skelj­ungs, Penn­ans, Borg­unar og Eldum rétt. Þá hefur hann einnig komið að stjórnun síma­fyr­ir­tæk­is­ins Kall í Fær­eyjum og sömu­leiðis hjá Bónus í Fær­eyj­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent