Vítalía um fráfarandi forstjóra Festi: „Ég á Eggerti mikið að þakka“

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi, var einn fárra sem hafði samband við Vítalíu Lazareva eftir að hún sakaði valdamenn í viðskiptalífinu um kynferðisbrot. Eggert Þór mun láta af störfum hjá Festi í sumar.

Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar. Vítalía Lazareva, sem greindi frá meintu kynferðisofbeldi í byrjun janúar, m.a. af hendi Þórðar Más Jóhannssonar stjórnarformanns Festi, segist eiga Eggerti mikið að þakka.
Eggert Þór Kristófersson hættir sem forstjóri Festi hf. í sumar. Vítalía Lazareva, sem greindi frá meintu kynferðisofbeldi í byrjun janúar, m.a. af hendi Þórðar Más Jóhannssonar stjórnarformanns Festi, segist eiga Eggerti mikið að þakka.
Auglýsing

„Ég á Egg­erti mikið að þakka og ég vona að hann viti það,“ segir Vítalía Laz­areva í færslu á Twitt­er. Í færsl­unni birtir hún hlekk á umfjöllun Mann­lífs þar sem ýjað er að því að nokkuð óvænt tíð­indi um starfs­lok Egg­erts Þórs Krist­ó­fers­son­ar, for­stjóra Festi, teng­ist frá­sögn Vítalíu af kyn­ferð­is­of­beldi í jan­úar þar sem hún sagði sig hafa orðið af hendi þriggja manna. Einn þeirra, Þórður Már Jóhann­es­son, var stjórn­ar­for­maður Festi.

Kjarn­inn fjall­aði um málið í byrjun jan­úar en Vítalía steig fram og greindi frá meintu ofbeldi í við­tali hjá Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konum þann 4. jan­úar síð­­ast­lið­inn.

Auglýsing

Hún nafn­greindi ekki menn­ina í við­tal­inu en í kjöl­farið voru þeir nafn­greindir í fjöl­miðl­um. Auk Þórðar var um ræða Ara Edwald, for­stjóra Ísey skyr, og Hregg­við Jóns­son, stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Ver­it­as. Í dag hafa allir þrír stigið til hliðar úr ábyrgð­ar­stöð­um.

Einn fárra sem hlust­aði

Í færslu sinni á Twitter dag segir Vítalía að Egg­ert Þór hafi verið einn fárra sem tal­aði við hana án þess að þekkja hana eftir að hún greindi frá kyn­ferð­is­of­beld­inu. Hann hafi hlustað og gefið henni tæki­færi til að segja hennar hlið þegar Þórður „var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórn­inn­i.“ Vítalía seg­ist eiga Egg­erti mikið að þakka og vonar hún að hann viti það.

Kjarn­inn hóf að spyrj­ast fyrir um ásak­an­irnar í októ­ber í fyrra eftir að Vítalía birti frá­sögn á Instagram af kyn­ferð­is­of­beldi. Þar sagði hún þrjá menn hafa beitt sig ofbeldi í heitum potti og í sum­ar­bú­stað. Í frá­sögn­inni fer hún yfir aðdrag­anda þess að hún end­aði með þeim þennan dag og í lok hennar nefnir hún þá alla á nafn. Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­þjálf­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við, og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgeng­i­­legur á Twitt­er-­­síðu Vítal­­íu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­­miklir í sam­­fé­lag­inu og allir fjöl­­skyld­u­­menn“.

Almanna­teng­ill ráð­lagði mönn­unum að þegja málið af sér

Skjá­­skot af frá­­­sögn hennar fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­mið­l­um, þrátt haft hafi verið sam­­band við menn­ina fjóra, meðal ann­­ars frá blaða­­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að það hafi verið gert að ráði almanna­teng­ils sem hafi sagt mönn­unum að segja að þetta væri kjafta­­saga. Best væri að þegja málið af sér.

Kjarn­inn leit­aði svara hjá stjórn Festi strax í nóv­­em­ber og spurði hvort vit­­neskja væri innan stjórnar varð­andi þetta mál og hvort stjórnin hyggð­ist bregð­­ast við með ein­hverjum hætti. Eftir margar ítrek­­anir svar­aði Guð­jón Reyn­is­­son vara­­for­­maður stjórnar þann 17. des­em­ber. Í svari hans sagði: „Það er rétt að umfjöll­unin sem spurt er um hefur verið til skoð­un­­­ar, en við getum ekki tjáð okkur að svo stödd­u.“ Vísar hann þarna í umfjöllun Stund­­ar­innar frá 17. nóv­­em­ber.

Ásak­anir á hendur Þórði Má ítrekað ræddar í stjórn Festi

Stjórn Festi hélt stjórn­­­ar­fund fimmt­u­dag­inn eftir að málið komst í hámæli í fjöl­miðlum og greindi stjórnin frá því sam­­dæg­­urs að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­­­­­ar­­­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­­­­­ar­­­for­­­mað­­­ur. „Stjórn féllst á erind­ið. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum upp á nýtt. Guð­jón Reyn­is­­­son var kjör­inn nýr for­­­maður stjórnar og Mar­grét Guð­­­munds­dóttir vara­­­for­­­mað­­­ur,“ sagði í til­­­kynn­ingu frá Festi.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að ásak­­anir á hendur Þórði Má hafi ítrekað verið ræddar í stjórn Festi en hann vildi ekki stíga til hliðar sem stjórn­­­ar­­for­­maður þrátt fyrir þrýst­ing þar um. Auk þess voru hlut­hafar í félag­inu í sam­­bandi við stjórn­­­ar­­menn og þrýst á aðgerð­ir, en án árang­­urs.

Í til­kynn­ingu eftir stjórn­ar­fund félags­ins 6. jan­ú­ar, tveimur dögum eftir að Vítalía greindi frá kyn­ferð­is­of­beld­inu í hlað­varp­inu Eigin Kon­um, greindi stjórnin frá því að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­ar­for­mað­ur.

„Stjórn Festi for­­dæmir allt ofbeldi“

Viku seinna barst Kaup­höll­inni til­kynn­ing frá Festi þar sem fram kom að fyr­ir­tækið ætl­aði að end­ur­skoða starfs­regl­ur. Í til­kynn­ing­unni sagði að þung­bært hefði verið að heyra um reynslu Vítal­íu. „Skýr skila­­boð hafa komið frá sam­­fé­lag­inu um að fyr­ir­tæki sem tengj­­ast slíkum málum bregð­ist fyrr við og taki á málum með skýr­­ari og ákveðn­­­ari hætti. Stjórn Festi for­­dæmir allt ofbeldi og telur mik­il­vægt að hlustað sé á þolend­­ur. Það er skylda okkar að breyt­­ast með sam­­fé­lag­inu og í sam­ein­ingu eigum við að búa til örugg­­ara umhverfi fyrir okkur öll,“ sagði meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

­Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag greindi Festi frá því í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar að Egg­ert Þór hafi sagt starfi sínu lausu frá 1. ágúst næst­kom­andi og að gert hafi verið sam­komu­lag um starfs­lok hans.

Egg­ert Þór hóf störf hjá N1 árið 2011 sem fjár­­­mála­­stjóri og varð for­­stjóri félags­­ins árið 2015. N1 keypti svo gamla Festi, þ.e. ELKO, Krón­una, Festi fast­­eignir og Bakk­ann vöru­hótel árið 2018 og tók nýja móð­­ur­­fé­lagið upp nafnið Festi. Haft er eftir Egg­ert í til­­kynn­ingu að það hafi verið „stefn­u­­mót­andi og mik­il­væg kaup til að und­ir­­búa félagið að orku­­skiptum og þeim breyt­ingum sem eru að verða í okkar sam­­fé­lag­i.“

„Ég hef verið láns­­samur að vinna með frá­­­bæru sam­­starfs­­fólki á þessum árum sem hafa gert Festi og dótt­­ur­­fé­lög af því sem þau er í dag. Ég mun sakna þess að vinna með þessu fólki en er einnig spenntur fyrir því sem fram­­tíðin ber í skauti sér,“ er einnig haft eftir Egg­erti.

„Þetta er spill­ing og ekk­ert ann­að,“ segir Vítalía í færslu sinni. Sem fyrr segir deilir hún frétt Mann­lífs þar sem gefið er í skyn að starfs­lok Egg­erts teng­ist frá­sögn Vítalíu af kyn­ferð­is­of­beld­inu.

Vítalía hefur lagt fram kæru á hendur Þórði, Hregg­viði og Ara. „Ég ætla ekki skilja málin eftir í lausu lofti og þetta er stórt og mik­il­vægt skref í rétta átt fyrir mig. Hræðsla og óör­yggi er ekki í boði fyrir mig og ég kem til með að standa upp­­rétt og ein­beita mér að rétt­læt­in­u,“ sagði hún í sam­tali við Kjarn­ann eftir að hún lagði fram kæruna í mars.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent