Vinnumálastofnun lýsir undrun sinni á ályktun miðstjórnar ASÍ og þeim aðdróttunum og innihaldslausu ásökunum sem þar eru settar fram í garð stofnunarinnar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Vinnumálastofnun, þar sem fjallað er um ályktun miðstjórnar ASÍ um málefni Primera Air Nordic.
„Þar er því gert skóna að Vinnumálastofnun hafi látið hjá líða að sinna lögbundnum skyldum sínum og að hún beri ábyrgð á þeim aðstæðum sem áhafnarmeðlimir hjá Primera Air Nordic og flugfarþegar eru nú í um allan heim. Fullyrðingar þessar eru með ólíkindum. ASÍ var fullkunnugt um að Vinnumálastofnun hafði hvorki lagaheimildir né lagaleg úrræði til að hafa afskipti af starfsemi fyrirtækisins hér á landi. Stofnunin hefur tekið þátt í samstarfi m.a. með aðilum vinnumarkaðarins um nauðsynlegar breytingar á lögum í þeim tilgangi að sporna gegn félagslegum undirboðum. Hafa þær breytingar meðal annars snúið að því að auka eftirlitsheimildir Vinnumálastofnunar, t.d. með heimild til að leggja á sektir á fyrirtæki sem veita ekki umbeðnar upplýsingar og/eða verða við öðrum kröfum stofnunarinnar,“ segir í yfirlýsingu Vinnumálastofnunar.
Vinnumálastofnun hafnar í yfirlýsingu þeim ásökunum sem fram koma í nefndri ályktun um að hún sinni ekki lögboðnu eftirliti sínu á vinnumarkaði. Þvert á móti segir að í yfirlýsingu að Vinnumálastofnun sinni eftirlitsstarfi sínu ein sem og í samstarfi við aðra opinbera aðila auk aðila vinnumarkaðarins.
„Orðræða af þessu tagi er því miður ekki til þess fallin að styrkja baráttuna gegn ólíðandi framgöngu á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Vinnumálastofnun.