Greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðsfélaga hækkað verulega í ár

Greiðslur dag- og sjúkrapeninga hafa hækkað um 43 prósent og 39 prósent milli ára hjá VR og Eflingu.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Greiðslur úr sjúkra­sjóðum tveggja stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins, VR og efl­ingu hafa auk­ist til muna á þessu ári. Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins hækk­uðu sjúkra- og dag­pen­inga greiðslur um 43 pró­sent hjá VR frá því á sama tíma og í fyrra. Hjá Efl­ingu hækk­uðu greiðsl­urnar um 39 pró­sent á milli ára. Hækk­unin skýrist af hluta til af því að laun hafa hækkað og félags­mönnum hefur fjölg­að. Sig­ríður Ólafs­dótt­ir, sviðs­stjóri sjúkra­sjóðs Efl­ingar segir engu að síður að: „Þó er ljóst að veik­um hef­ur fjölg­að, þeir voru leng­ur veik­ir og fengu hærri upp­­hæð­ir,“ Morg­un­blaðið greinir frá þessu í morg­un.



Haft er eftir Ragn­ari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, í blað­inu að iðgjöld í sjúkra­sjóð félags­ins hafi numið 1,8 millj­örðum í fyrra og verði um tveir millj­arðar í ár. Ragnar segir félagið komið yfir 80 pró­sent útgreiðslu­hlut­falls en VR er með einn öfl­ug­asta sjúkra­sjóð lands­ins og því stendur félagið enn sem komið er undir greiðsl­un­um. „Ef þessi þróun heldur áfram þá endar þetta bara á einn veg, með skerð­ing­um. Þetta getur ekki haldið áfram enda­laust.”

Ragnar segir brýnt að kom­ast að rót vand­ans en ann­ars sé við­búið að afleið­ing­arnar legg­ist af þunga á almanna­trygg­inga­kerf­ið. „Við vilj­um vita af hverju fólkið okk­ar er að gef­­ast upp. Hvað er það í okk­ar sam­­fé­lagi sem veld­ur því að við erum að missa fólk í þetta mikl­um mæli í veik­indi, í streit­u­tengda sjúk­­dóma, og út af vinn­u­­mark­að­i?“

Auglýsing
Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins kemur fram að greiðslur byrj­uðu að aukast frá árinu 2013, meðal ann­ars vega aukn­ingar á kvíða- og þung­lyndistengdum kvillum og ein­kennum um kulnun í starfi. Ragnar telur að lík­legir orsaka­valdar gætu verið fyr­ir­tækja­menn­ing hér að landi; of mikið álag á starfs­fólki, óör­yggi vegna stöðu á hús­næð­is­mark­aði og fram­færslu. Hann veltir einnig upp spurn­ing­unni hvort þetta gætu verið síð­búin áhrif hruns­ins að koma fram af meiri þunga en gert var ráð fyr­ir. Ragnar segir að nú sé starf­andi rann­sókn­ar­hópur á vegum VIRK með aðkomu stjórn­valda, verka­lýðs­fé­laga og fleiri. Á hans vegum er komin af stað vinna við að reyna að greina þetta ástand.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent