Geir H. Haarde hættir sem sendiherra í Bandaríkjunum

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra í Bandaríkjunum, lætur af störfum í utanríkisþjónustunni 1. júlí næstkomandi og tekur sæti aðalfulltrúa í stjórn Alþjóðabankans.

Geir H. Haarde
Geir H. Haarde
Auglýsing

Geir H. Haar­de, sendi­herra í Banda­ríkj­un­um, lætur af störfum í utan­rík­is­þjón­ust­unni 1. júlí næst­kom­andi og tekur sæti aðal­full­trúa í stjórn Alþjóða­bank­ans fyrir hönd kjör­dæmis Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja.

Þetta kemur fram í frétt utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Í henni er greint frá því að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafi ákveðið flutn­inga for­stöðu­manna sendi­skrif­stofa í utan­rík­is­þjón­ust­unni á næsta ári. Var ákvörðun utan­rík­is­ráð­herra til­kynnt starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins í morg­un.

Auglýsing

Um er að ræða breyt­ingar á sjö sendi­skrif­stof­um. Þær fela ekki í sér skipun nýrra sendi­herra heldur er ein­göngu um flutn­inga núver­andi sendi­herra að ræða, segir í frétt­inn­i. 

Ásamt Berg­dís Ell­erts­dótt­ir, sem verið hefur fasta­full­trúi Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­un­um, tekur við stöðu sendi­herra í Banda­ríkj­un­um.

Helga Hauks­dótt­ir, sem nú er skrif­stofu­stjóri laga- og stjórn­sýslu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, verður sendi­herra í Dan­mörku og María Erla Mar­els­dótt­ir, skrif­stofu­stjóri þró­un­ar­sam­vinnu­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins, verður sendi­herra í Þýska­land­i. 

Þá verður Jör­undur Val­týs­son fasta­full­trúi Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum en hann hefur gegnt stöðu skrif­stofu­stjóra alþjóða- og örygg­is­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Her­mann Ing­ólfs­son, sendi­herra í Nor­egi, verður fasta­full­trúi Íslands hjá Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og tekur Ingi­björg Dav­íðs­dótt­ir, sendi­herra, við sem sendi­herra Íslands í Nor­egi. Breyt­ing­arnar mið­ast við 1. ágúst 2019.

Bene­dikt Jóns­son, sendi­herra, Martin Eyj­ólfs­son, sendi­herra, og Anna Jóhanns­dótt­ir, sendi­herra, munu koma að utan til starfa í ráðu­neyt­inu á sama tíma.

Venju sam­kvæmt eru breyt­ingar á skipan for­stöðu­manna sendi­skrif­stofa til­kynntar með fyr­ir­vara um sam­þykki við­kom­andi gisti­rík­is, segir í frétt­inn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent