Áföll í flugrekstri ógna ekki fjármálastöðugleika

Fjármálastöðugleikaráð fjallaði um þann mótvind sem íslenskir flugrekendur hafa verið í á síðasta fundi sínum. Ráðið telur að möguleg áföll þeirra muni ekki ógna fjármálastöðugleika.

Seðlabankastjóri, fjármála- og efnahagsráðherra og forstjóri Fjármálaeftirlitsins sitja í fjármálastöðugleikaráði.
Seðlabankastjóri, fjármála- og efnahagsráðherra og forstjóri Fjármálaeftirlitsins sitja í fjármálastöðugleikaráði.
Auglýsing

Fjár­mála­stöð­ug­leika­ráð telur að mögu­leg áföll í flug­geir­anum myndu ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika á Íslandi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins um það sem fjallað var um á fjórða fundi sínum á þessu ári, sem fram fór síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í ráð­inu sitja Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri og Unnur Gunn­ars­dótt­ir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að inn­lendir flug­rek­endur hafi lent í „mót­vindi und­an­farna mán­uði“ en að mögu­leg áföll þeirra myndu ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika. „Þá er geta þjóð­ar­bús­ins til að takast á við áföll góð, m.a. vegna góðrar ytri stöðu, stórs gjald­eyr­is­forða og sögu­lega lágrar skulda­stöðu hins opin­bera og einka­að­ila.“

WOW air bjarg­aði sér fyrir horn en Pri­mera féll

Stóru íslensku flug­fé­lögin tvö, WOW air og Icelanda­ir, hafa bæði átt í vand­ræðum upp á síðkastið og það sér ekki fyrir end­ann á því enn­þá, þrátt fyrir að WOW air hafi bjargað sér að minnsta kosti tíma­bundið fyrir horn nýverið með því að útvega 60 millj­ónir evra, eða um 7,7 millj­arða króna, í skulda­bréfa­út­boði.

Auglýsing
Þá fór Pri­mera Air, sem er í íslenskri eigu, í greiðslu­stöðvun í síð­ustu viku, nokkrum vikum eftir að eig­andi þess, Andri Már Ing­ólfs­son sagði við Morg­un­blaðið að Pri­mera Air væri við það að loka skulda­bréfa­út­boði upp á 40 millj­ónir evra, um 5,2 millj­arða króna, með þátt­töku alþjóð­lega fjár­festa.

WOW air vinnur nú að því að afla meira fjár og verða skráð á markað eins fljótt og hægt er, og eru Arct­ica Fin­ance og Arion banki að vinna að því ferli með fyr­ir­tæk­inu.

Icelandair í við­ræðum við skulda­bréfa­eig­endur

Icelandair hefur verið rekið með tapi síð­ustu miss­eri og félagið hefur birt afkomu­við­var­anir í Kaup­höll Íslands vegna þess að áætl­anir þess hafa ekki stað­ist.

Í síð­ustu viku sendi Icelandair frá sér til­kynn­ingu þess efnis að félagið hefði hafið við­ræður við skulda­bréfa­út­gef­endur sína í ljósi þess að lægri rekstr­ar­hagn­aður félags­ins gæti mögu­lega gert það að verkum að það upp­fylli ekki fjár­hags­legar kvaðir varð­andi hlut­fall heildar vaxta­ber­andi skulda sem getið er í skil­málum skulda­bréfa Icelanda­ir.

Við­ræð­urnar eru við full­trúa skulda­bréfa­eig­enda sem ráða yfir meira en 50 pró­sent af hinum útgefnu bréf­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent