Það mun hafa í för með sér afdrifaríkar afleiðingar fyrir sunnanverða Vestfirði ef stjórnvöld bregðast ekki við samstundis við úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, segja forsvarsmanna sveitarfélaga á svæðinu. Formaður stjórnar Arnarlax, Kjartan Ólafsson, segir: „Við höfum miklar áhyggjur af stöðunni og erum uggandi yfir stöðu fyrirtækisins og greinarinnar í heild sinni. Ljóst er að inngrip með þessum hætti hefur veruleg áhrif á uppbyggingu félagsins og þær framtíðarvæntingar sem við berum í brjósti,“ Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Forsvarsmenn Vesturbyggðar og Tálknafjarðar funduðu með forystumönnum ríkisstjórnarflokkana síðastliðinn laugardag og gerðu þeim grein fyrir alvarleika málsins. Sveitarfélögin tvö eru með tæplega 1300 íbúa og talið er að um 165 íbúar vinni fyrir fyrirtækin á svæðinu beint auk fjölda verktaka og þjónustufyrirtækja sem tengjast fiskeldi. Talið er að ef ekki er brugðist við strax við að leysa úr þessum vanda þá er ljóst að þetta mun hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir samfélagið í heild sinni.
Auglýsing
Ríkistjórnarflokkarnir vinna að lausnum
Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag kemur fram að á fundinum var sveitarfélögunum tjáð að unnið væri að lausnum til að bregðast við því óvissuástandi sem ríkir fyrir vestan. Formenn stjórnarflokkanna tjáðu sig einnig allir um málið á Facebook um helgina.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri Grænna, skrifaði m.a. í gær á Facebook síðu sína: „Við upplýstum þau um að sjávarútvegsráðherra og umhverfisráðherra hafa verið með til skoðunar hvaða leiðir eru færar til þess að gæta meðalhófs í þessu máli og öðrum, þannig að fyrirtæki geti almennt fengið sanngjarnan frest til að bæta úr þeim annmörkum sem koma fram í kæruferli og faglega sé staðið að öllum málum. Það er von mín að farsæl lausn finnist á þessu máli sem allra fyrst.“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði m.a. á laugardag að óvissan sem skapaðist á Vestfjörðum í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál væri með öllu óviðunandi. „Hér verður að bregðast hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagnvart stjórnvöldum.“ Bjarni sagði að tryggja yrði að sanngjarnar reglur giltu um rétt til að bæta úr ágöllum í leyfisumsóknarferli, ef slíku væri til að dreifa, í þessu máli og til frambúðar.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, kallaði eftir lausnum og rifjaði upp á Facebook síðu sinni í gær hvernig viðvarandi fólksfækkun á sunnanverðum Vestfjörðum til 2012 snerist við vegna uppbyggingar fiskeldis. Sömuleiðis snerist íbúaþróun við á norðanverðum Vestfjörðum í fyrra vegna fiskeldis. Hann sagði að yfir 300 störf tengdust fiskeldinu fyrir vestan. Auk þess störfuðu tugir í Ölfusi/Þorlákshöfn. Þá hefði fiskeldi haft jákvæð áhrif á byggðaþróun á sunnanverðum Austfjörðum. „Mikilvægi fiskeldis í uppbyggingu byggðanna fyrir vestan og austan er staðreynd og ætti ekki að vera ágreiningsmál. Það má því vera öllum ljóst að finna þarf skynsamlegar lausnir á núverandi stöðu,“ skrifaði Sigurður Ingi.
Bæjarstjóri Vesturbyggðar og oddviti Tálknafjarðarhrepps komu á fund formanna stjórnarflokkanna í gær ásamt...
Posted by Katrín Jakobsdóttir on Sunday, October 7, 2018