Kínverski seðlabankinn bregst við tollastríði með fjárinnspýtingu

Stjórnvöld í Kína eru þegar byrjuð að undirbúa sig undir breytta mynd alþjóðaviðskipta vegna tollastríðs Kína og Bandaríkjanna.

Kína
Auglýsing

Seðla­bank­inn í Kína hefur ákveðið að auka enn frekar við fjárinn­spýt­ingu á inn­an­lands­mark­aði, til að bregð­ast við tolla­stríð­inu við Banda­rík­in. Meðal þess sem gripið hefur verið til, er að liðka fyrir lánum banka og koma meira fjár­magni í umferð, einkum til að styðja við vöxt og við­gang fyr­ir­tækja, en þegar eru komin fram merki um að við­skipta­stríðið við Banda­ríkin - sem Don­ald Trump hefur nú gert að einu að grund­vall­ar­málum sínum í efna­hags­málum - muni hafa mikil áhrif í Kína. 

Bob Baur, aðal­hag­fræð­ingur PGI (Principal Global Invest­ing), lét hafa eftir sér í við­tali við Bloomberg um helg­ina, að Kín­verjar væru nú að reyna að halda vöxtum frekar í lægri kant­in­um, miðað við alþjóð­legt sam­hengi, og beita fjárinn­spýt­ingu inn á mark­að­inn, til að örva hag­kerfið heima fyr­ir. Hann sagði að þetta væri samt erfið staða fyrir Kína, þar sem miklar skuldir heima fyr­ir, bæði hjá heim­ilum og fyr­ir­tækj­um, væru áhyggju­efni og of mikil örvun fyrir hag­kerfið gæti skapað vanda­mál.

Óhætt er að segja að mik­ill upp­gangur hafi verið í kín­verska hag­kerf­inu á und­an­förnum tveimur ára­tug­um. Hag­vöxtur hefur verið á bil­inu 6 til 10 pró­sent á ári, í tvo ára­tugi. Í fyrra var hag­vöxt­ur­inn 6,9 pró­sent.

Auglýsing



Rík­is­stjórn Trumps hefur nú þegar komið á tollum sem bein­ast að inn­flutn­ingi frá Kína, upp á 250 millj­arða Banda­ríkja­dala. Segja má að við­skipta­stríðið sem Trump hóf sé nú komið á næsta stig, þar sem toll­arnir - meðal ann­ars 10 til 25 pró­sent tollar á málm­inn­flutn­ing - eru farnir að hafa mikil áhrif á gang efna­hags­mála í heim­in­um. 

Efna­hags­stríð Banda­ríkj­anna og Kín­verja er líka sífellt að magn­ast upp á hinu póli­tíska sviði. Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, segir Kín­verja vera að reyna að losa sig við Trump úr emb­ætti for­seta, meðal ann­ars með skipu­lögðum tölvu­árásum í aðdrag­anda kosn­inga í nóv­em­ber (mid term elect­ion). Á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna sagði Trump sjálfur að Kín­verjar væru að beita sér gegn Banda­ríkj­un­um, og það yrði ekki lið­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent