Krefjast 425 þúsund króna lágmarkslauna og víðtækra kerfisbreytinga

Starfsgreinasambandið hefur samþykkt kröfugerð fyrir komandi kjaraviðræður, bæði gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum.

samninganefnd
Auglýsing

Starfs­greina­sam­bandið hefur sent frá sér kröfu­gerð fyrir kom­andi kjara­við­ræður og er í henni gerð krafa um 425 þús­und króna lág­marks­laun og víð­tækar kerf­is­breyt­ing­ar, bæði á vinnu­um­hverfi launa­fólks og skatta­stefnu stjórn­valda. 

Kröfu­gerð­in, sem sam­þykkt var á fundi samn­inga­nefndar í dag, er tví­þætt og bein­ist að stjórn­völdum og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins. 

Kjara­samn­ingar renna út úm ára­mót.  Aðlild­ar­fé­lög eru Efl­ing-­stétt­ar­fé­lag, Vlf. Akra­ness, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Vlf. Snæ­fell­inga, Vlf. Vest­firð­inga, Vls­fél. Bol­ung­ar­vík­ur, Stétt­ar­fé­lagið Sam­staða, Aldan stétt­ar­fé­lag, Ein­ing-Iðja, Fram­sýn stétt­ar­fé­lag, Vlf. Þórs­hafn­ar, Afl-­Starfs­greina­fé­lag, Vlf. Suð­ur­lands, Báran stétt­ar­fé­lag, Dríf­andi stétt­ar­fé­lag, Vfl. Grinda­vík­ur, Vls­fél. Kefla­víkur og nágrennis (VS­FK), Vls­fél. Sand­gerðis og Vlf. Hlíf.

Auglýsing

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart SA kemur meðal ann­ars fram: 

„Lág­marks­laun verði 425.000 krónur í lok samn­ings­tím­ans að því gefnu að ekki komi til umtals­verðra skatt­kerf­is­breyt­inga, þannig að sköttum verði létt af lægstu launum og lægri milli­laun­um. 

Launa­taflan verði end­ur­skoðuð og ein­földuð veru­lega og skil­greint sé hund­raðs­hlut­fall á milli flokka og ­þrepa. Fjöldi þrepa verði auk­inn þannig að starfs­ald­urs­þrep mið­ist við eins árs, 3ja ára, 7 ára og 10 ára ­þrep. 

Ung­menna­laun yfir 18 ára aldri verði afnumin en þess í stað mið­ist grunn­laun við 18 ára ald­ur. Á­byrgð og álag verði metið til launa með skil­greindu hund­raðs­hluta­á­lagi. Með ábyrgð og álagi er með­al­ ann­ars átt við þjálfun nýrra starfs­manna, álag sem fylgir mann­eklu á vinnu­stað, álag vegna ­til­finn­inga­vinnu, ábyrgð á öryggi við­skipta­vina, far­þega og vinnu­fé­laga. 

Álag fyrir vakta­vinnu á tíma­bil­inu frá mið­nætti til kl. 8 skal vera hærra. Or­lofs- og des­em­ber­upp­bætur taki sér­stökum hækk­un­um. 1.maí verði skil­greindur sem stór­há­tíð­ar­dag­ur,“ segir í kröfu­gerð­inn­i. 

Í kröfu­gerð­inni gagn­vart stjórn­völdum er meðal ann­ars gerð krafa um hækkun á fjár­magnstekju­skatti og tvö­földun á per­sónu­af­slætti. „Lægstu laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­slátt­ar, sem verði síðan stig­lækk­andi með hærri ­tekj­um, þannig að lækkun skatta á lág- og milli­tekju­hópa verði m.a. fjár­mögnuð með hærra skatta­fram­lagi þeirra tekju­hæstu. Álagn­ing tekju­skatt­kerf­is­ins á lægri og hærri tekju­hópa verði þar ­með lík­ari því sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Sá per­sónu­af­sláttur sem um semst þarf að ­fylgja launa­þróun þannig að ekki dragi jafnt og þétt úr tekju­jöfn­un­ar­á­hrifum skatta- og bóta­kerf­is­ins eins og varð á síð­ustu ára­tug­um,“ segir meðal ann­ars í kröfu­gerð­inn­i. 

Lesa má kröfu­gerð­ina gag­vart stjórn­völdum hér, og kröfu­gerð­ina gagn­vart SA hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent