Stúlka undir 18 ára aldri gift á þriggja sekúndu fresti

Alþjóðadagur stúlkubarna er á morgun, 11. október, og ætla samtökin Barnaheill - Save the Children á Íslandi að helga daginn baráttunni gegn barnahjónaböndum.

Munni, 16 ára stúlku sem býr í fátækrahverfi í Patna, Indlandi ásamt foreldrum sínum, fimm bræðrum og tveimur systrum.
Munni, 16 ára stúlku sem býr í fátækrahverfi í Patna, Indlandi ásamt foreldrum sínum, fimm bræðrum og tveimur systrum.
Auglýsing

Þriðju hverju sek­úndu árið um kring er stúlka undir 18 ára aldri gift, oft­ast sér eldri karli. Ef heldur sem horfir verða 134 millj­ónir stúlkna giftar á ára­bil­inu 2018 til 2030. Árið 2030 eitt og sér munu tíu millj­ónir stúlkna gift­ast og ríf­lega tvær millj­ónir þeirra munu gift­ast áður en þær hafa náð 15 ára aldri.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Save the Children, Work­ing Together to End Child Marri­age, og greint frá í til­kynn­ingu frá Barna­heill - Save the Children á Íslandi í dag. Alþjóða­dagur stúlku­barna er á morg­un, 11. októ­ber, og hafa sam­tökin helgað dag­inn bar­átt­unni gegn barna­hjóna­bönd­um.

Í skýrsl­unni segir að ef ekk­ert verði að gert muni barna­hjóna­bönd rýra lífs­gæði millj­óna stúlkna, hefta mögu­leika þeirra til mennt­unar og að lifa til fulls. Þær séu lík­legri til að deyja af orsökum sem hægt er að fyr­ir­byggja.

Auglýsing

Menntun stúlkna lyk­il­at­riðið til árang­urs

Enn fremur kemur fram að hafi stúlkur frelsi til að njóta bernskunn­ar, mennta sig og njóta verndar hafi það afar jákvæð áhrif á lífs­hlaup þeirra. Ef hjóna­bandi og barn­eignum stúlkna er frestað fram yfir 18 ára aldur séu meiri líkur á að þær haldi áfram skóla­göngu og ljúki mennt­un. Í því felist mikil vald­efl­ing og stúlk­urnar séu lík­legri til að vera virkar í sam­fé­lag­inu, verða efna­hags­lega sjálf­stæðar og leggja sitt af mörkum til efna­hags­lífs­ins.

„Stjórn­völd í þeim löndum þar sem barna­brúð­kaup eru hvað algeng­ust verða að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að þróa og virkja aðgerða­á­ætl­anir á öllum sviðum til að stöðva vand­ann. Það felur í sér skipu­lag aðgerða þvert á ráðu­neyti og meðal hags­muna­að­ila svo hægt sé að stilla saman strengi og ná árangri.

Menntun stúlkna er lyk­il­at­riði til að ná árangri. Sam­kvæmt nýrri grein­ingu Barna­heilla – Save the Children mætti afstýra 51 milljón barna­hjóna­banda til árs­ins 2030 með því að tryggja stúlkum grunn­menntun upp að 16 ára aldri. En til þess að það geti orðið þarf að leggja mun rík­ari áherslu á að upp­ræta kynja­ó­jafn­rétti og aðrar und­ir­liggj­andi orsakir fyrir brott­falli stúlkna úr skóla,“ segir í skýrsl­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent