Íslendingar fara meira til útlanda en áður

Brottfarir Íslendinga voru tæp níu prósent fleiri á þessu ári en því síðasta. Heldur dregur úr fjölgun ferðamanna, samkvæmt talningu Ferðamálastofu.

Leifsstöð
Leifsstöð
Auglýsing

Um 58 þús­und Íslend­ingar fóru utan í sept­em­ber í ár eða 1,1 pró­sent fleiri en í sept­em­ber á síð­asta ári. Sam­tals voru brott­farir Íslend­inga á tíma­bil­inu jan­úar til sept­em­ber um 503 þús­und tals­ins eða 8,8 pró­sent fleiri en á sama tíma­bili árið 2017. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu sem send var út í dag. 

Í henni kemur fram að brott­farir erlendra far­þega frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl í sept­em­ber síð­ast­liðnum hafi verið tæp­lega 232 þús­und tals­ins eða um 28 þús­und fleiri en í sept­em­ber á síð­asta ári. ­Fjölg­unin nam 13,6 pró­sent á milli ára, sem er álíka og í maí og mun meiri en mælst hefur aðra mán­uði árs­ins.

Sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu voru Banda­ríkja­menn fjöl­menn­astir í sept­em­ber eða ríf­lega þriðj­ungur og fjölg­aði þeim um 43,7 pró­sent milli ára. Af 32 þjóð­ernum sem talin eru sér­stak­lega var fjölgun frá 19 lönd­um. Að Banda­ríkja­mönnum frá­töldum fjölg­aði Spán­verj­um, Kín­verjum og Pól­verjum mest. Fækkun var frá nokkrum lyk­il­mörk­uðum á borð við Bret­land, Þýska­land og Frakk­land.

Auglýsing

Dregur úr fjölgun ferða­manna

Frá ára­mótum hefur um 1,8 milljón erlendra far­þega farið úr landi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 5,5 pró­sent fjölgun miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Far­þegum í sept­em­ber fjölgar nú um 13,6 pró­sent milli ára sem er álíka og í fyrra en mun minni fjölgun en árin þar á und­an. Fjölg­unin í sept­em­ber var að jafn­aði 24 pró­sent milli ára síð­ast­liðin fimm ár mest frá 2015 til 2016 eða 33,9 pró­sent.

Segir í til­kynn­ing­unni að sé tíma­bilið frá ára­mótum skoðað – í sam­an­burði við sama tíma­bil nokkur ár aftur í tím­ann – megi glögg­lega sjá að dregið hefur veru­lega úr þeirri fjölgun sem verið hefur síð­ustu ár. Frá ára­mótum hefur verið 5,5 pró­sent fjölgun en á sama tíma fyrir ári var hún 28,1 pró­sent. Næstu tvö tíma­bil þar á undan hafði fjölgun á milli ára verið á bil­inu 28 til 34 pró­sent milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent