Ísland mun taka á móti allt að 75 flóttamönnum á næsta ári

Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um móttöku allt að 75 flóttamanna á næsta ári, að stærstun hluta Sýrlendingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flóttamönnum og fjölskyldum þeirra sem nú eru í Kenýa.

Flóttabarn í Frakklandi
Auglýsing

Rík­is­stjórnin tók í dag ákvörðun um mót­töku allt að 75 flótta­manna á næsta ári, að stærstun hluta Sýr­lend­ingum sem staddir eru í Líbanon en einnig hinsegin flótta­mönnum og fjöl­skyldum þeirra sem nú eru í Kenýa. Ákvörð­unin bygg­ist á til­lögum flótta­manna­nefndar í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Í henni kemur fram að þetta sé í fjórða sinn sem stjórn­völd taka á móti sýr­lensku flótta­fólki en fyrsti hóp­ur­inn kom hingað árið 2015. Þetta sé í þriðja sinn sem tekið er á móti hinsegin flótta­fólki.

Auglýsing

Næstu skref vegna áform­aðrar mót­töku flótta­fólks hér á landi verða að upp­lýsa Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um ákvörðun rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu. „Stofn­unin leggur í fram­haldi af því fram upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga sem hún telur koma til greina að bjóða til Íslands og verður unnið úr þeim upp­lýs­ingum hér á landi, meðal ann­ars með aðkomu Útlend­inga­stofn­un­ar. Þegar fyrir liggur hverjum verður tekið á móti og þar með upp­lýs­ingar um sam­setn­ingu hóps­ins, ald­ur, fjöl­skyldu­sam­setn­ingu og fleira tengt aðstæðum þeirra og þörf­um, semur vel­ferð­ar­ráðu­neytið við til­tekið sveit­ar­fé­lag eða sveit­ar­fé­lög um mót­töku fólks­ins,“ segir í frétt­inn­i. 

Enn fremur kemur fram að Sýr­lend­ingar séu fjöl­menn­astir í hópi fólks á flótta í heim­inum sem er í þörf fyrir alþjóð­lega vernd. Sýr­lenskir flótta­menn í Líbanon telji yfir milljón manns, búi þar við þröngan kost og staða þeirra hafi farið síversn­andi. Um 55 pró­sent sýr­lenskra barna á flótta sem stödd eru í Líbanon hafi ekki aðgang að form­legri mennt­un.

Jafn­framt segir að staða hinsegin flótta­fólks í Afr­íku sé við­kvæm vegna útbreiddra for­dóma. Algengt sé að hinsegin flótta­fólk og fjöl­skyldur þess verði fórn­ar­lömb ofbeldis í flótta­manna­búð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent