Travelco, nýtt eignarhaldsfélag, hefur keypt allar ferðaskrifstofur Primera Travel Group, og tekið yfir skuldir við Arion banka.
Frá þessu er greint í tilkynningu en stærsti eigandi Travelco er Andri Már Ingólfsson, sem áður var forstjóri og stærsti eigandi Primera.
Nýtt hlutafé í Travelco nemur milljarði króna, samkvæmt tilkynningu.
Kaupverðið er ekki gefið upp í tilkynningu.
„Í kjölfar lokunar Primera Air, töpuðu ferðaskrifstofur Primera Travel Group háum fjárhæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flugfélagsins en voru ekki flogin. Kaupa varð önnur flug fyrirvaralaust, til að vernda farþega fyrirtækjanna. Til að tryggja rekstur ferðaskrifstofanna var stofnað nýtt eignarhaldsfélag með milljarð í nýju hlutafé, sem að stórum hluta hefur nú þegar verið greitt inn. Rekstur allra fyrirtækjanna hefur nú verið fluttur undir Travelco Nordic A/S í Danmörku, sem hét áður Primera Travel A/S, en það félag heldur áfram óbreyttum rekstri. Öll félögin eru færð undir það félag til að einfalda félagið og styrkja eigið fé þess eftir þessi miklu áföll. Félagið stendur við allar skuldbindingar sínar gagnvart öllu starfsfólki og birgjum og heldur áfram rekstri allra ferðaskrifstofanna óbreyttum. Andri Már Ingólfsson er stærsti hluthafi Travelco,“ segir í tilkynningu.