Samkeppniseftirlitið ógildir lyfjasamruna í Mosfellsbæ

Samkeppniseftirlitið segir reynsluna af virkri samkeppni á lyfjamarkaði í Mosfellsbæ hafa verið góða.

Lyf Mynd: Pixabay
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ógilt sam­runa sem áform­aður var með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf. Ákvörðun þess efnis hefur verið birt á vef eft­ir­lits­ins.

Lyf og heilsa rekur 30 apó­tek um landið ann­ars vegar undir heit­inu Lyf og heilsa og hins vegar Apó­tek­ar­inn. Eru Lyf og heilsa einn stærsti lyfja­smá­sali á land­in­u. 

Opna rekur eitt apó­tek í Mos­fells­bæ, Apó­tek MOS. Það apó­tek var opnað um mitt ár 2016. Áður en Apó­tek MOS hóf starf­semi var eitt apó­tek í Mos­fells­bæ, Apó­tek­ar­inn í eigu Lyf og heilsu. Eru Apó­tek MOS og Apó­tek­ar­inn einu lyfja­versl­an­irnar í Mos­fellsbæ í dag.

Auglýsing

„Rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sýnir að inn­koma Apó­teks MOS hafði mjög góð áhrif á sam­keppni á svæð­inu. Bauð Apó­tek MOS upp á nýja þjón­ustu í formi skipu­lags versl­un­ar­innar og aðstoðar lyfja­fræð­inga. Einnig var opn­un­ar­tími lengri en áður hafði tíðkast í Mos­fells­bæ. Sýna gögn máls­ins að neyt­endur tóku þessum nýja val­kosti vel og hafði sam­keppni frá Apó­teki MOS veru­leg áhrif á rekstur Apó­tek­ar­ans í Mos­fells­bæ,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Upp­lýst er í mál­inu að Lyf og heilsa setti sig í sam­band við for­svars­mann Apó­teks MOS um mögu­leg kaup á félag­inu og samn­ingar náð­ust.

Í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins seg­ir, meðal ann­ar­s: 

„Ef sam­run­inn yrði að veru­leika myndi sú sam­keppni sem Apó­tek MOS veitir umræddu úti­búi Lyfja og heilsu hverfa. Tók Sam­keppn­is­eft­ir­litið til rann­sóknar að hvaða marki apó­tek í nágranna­sveit­ar­fé­lögum gætu veitt sam­keppn­is­legt aðhald. Lét eft­ir­litið fram­kvæma neyt­enda­könnun í Mos­fellsbæ og setti sig í sam­band við fjölda lyf­sölu­leyf­is­hafa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur leitt í ljós að lyf­sala í Mos­fellsbæ er mjög stað­bund­in. Þannig sýnir rann­sóknin að stað­setn­ing apó­teka hefur mikil áhrif á val við­skipta­vina á apó­teki. Neyt­endur kjósa almennt að eiga við­skipti við apó­tek sem eru sem næst heilsu­gæslu­stöðv­um/lækna­stofum eða heim­ilum þeirra. Á þetta ekki síst við í til­viki aldr­aðra eða þegar aðkallandi er að fá lyf í hend­ur. Í sam­ræmi við þetta sýndi rann­sóknin að hátt hlut­fall við­skipta­vina apó­tek­anna í Mos­fellsbæ eru Mos­fell­ing­ar, auk þess sem nokkuð langt er í önnur apó­tek. Af þessu leiðir að sam­runi umræddra apó­teka myndi valda við­skipta­vinum þeirra veru­legu sam­keppn­is­legu tjón­i. ­Til­lögur sem Lyf og heilsa lögðu fram til að vinna gegn sam­keppn­is­hömlum vegna sam­run­ans duga ekki að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og er því sam­run­inn ógiltur í sam­ræmi við ákvæði sam­keppn­islaga.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent