Skiptastjóri þrotabús fjölmiðlafyrirtækisins Pressunnar, sem var tekið til gjaldþrotaskipta í desember í fyrra, vill láta rifta ráðstöfunum á fjármunum upp á samtals um 400 milljónir króna, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Málin hafa þegar verið þingfest í héraði en ekki til lykta leidd, en að mati skiptastjóra, Kristjáns B. Thorlacius hrl., var jafnfræðis ekki gætt meðal kröfuhafa félagsins í þeim tilvikum þar sem nú hefur verið óskað eftir riftun.
Kristján varðist frétta af málinu, í samtali við Kjarnann, og vildi ekki veita upplýsingar um þessi riftunarmál sem Kjarninn hefur heimildir fyrir að nú séu komin inn á borð dómstóla.
Samtals var kröfum upp á 315 milljónir króna lýst í þrotabú Pressunnar og um 235 milljónum króna í bú DV ehf., sem var í eigu Pressunnar.
Kröfulýsingafrestur í þrotabú DV rann út í maí. Meðal krafna voru meðal annars yfir 50 milljóna forgangskröfur vegna vangoldinna launa og lífeyrisgreiðslna.
Almennar kröfur voru upp á 183,5 milljónir króna og var stærsta krafan frá Tollstjóra vegna opinberra gjalda, að því er fram kom í frétt RÚV í maí síðastliðnum.
Rekstur Pressunnar hafði lengi verið í fullkomnu uppnámi áður en félagið var loks tekið til gjaldþrotaskipta, enda skuldaði félagið meðal annars lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og hinu opinbera hundruð milljóna króna.
Slíkt er vitaskuld óheimilt samkvæmt lögum, og refsing viðlögð við því að standa ekki skila á þessum gjöldum, fyrir ábyrgðarmenn rekstursins.
Rétt áður en Pressan varð gjaldþrota, keypti félagið Frjáls fjölmiðlun ehf., sem Sigurður G. Guðjónsson hrl. á, stóran hluta af eignum Pressunnar.
Meðal annars voru það DV, Pressan, Eyjan, Bleikt og 433.is. Síðan þá hafa flestir fjölmiðlarnir farið undir vef DV.is.
Frjáls fjölmiðlun ehf., sem rekur DV og fleiri fjölmiðla, tapaði 43,6 milljónum króna á þeim tæpu fjórum mánuðum sem félagið var starfandi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 milljónir króna frá því að félagið hóf starfsemi í september 2017 og fram að áramótum.
Eigandi Frjálsrar fjölmiðlunar er félagið Dalsdalur ehf. Eini skráði eigandi þess er Sigurður G. Guðjónsson lögmaður sem er einnig skráður fyrirsvarsmaður Frjálsrar fjölmiðlunar hjá Fjölmiðlanefnd.
Frjáls fjölmiðlun hóf starfsemi í september 2017. Heildartap fyrir skatta var 54,5 milljónir króna en skattinneign skilaði félaginu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.
Alls eru eignir Frjálsrar fjölmiðlunar metnar á 529 milljónir króna. Þar af eru óefnislegar eignir bókfærðar á 470 milljónir króna.
Skuldir félagsins, sem er ein stærsta einkarekna fjölmiðlasamsteypa landsins, voru 542 milljónir króna um síðustu áramót og var stofnað til þeirra á síðasta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eigandann, Dalsdal ehf. Sú skuld, sem virðist vaxtalaus, á að greiðast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 milljónir króna á ári. Ekki kemur fram í ársreikningi Dalsdals ehf. hver lánaði því félagi fjármagn til að lána Frjálsri fjölmiðlun en þar segir að Dalsdalur eigi að greiða þeim aðila alla upphæðina til baka í ár, 2018.
Þá kemur fram í ársreikningi Frjálsrar fjölmiðlunar að ógreitt kaupverð eigna væri 53 milljónir króna í árslok 2017. Eigið fé félagsins var neikvætt um 13,3 milljónir króna um síðustu áramót, inngreitt hlutafé var 30 milljónir króna og félagið átti 14,6 milljónir króna í handbæru fé.
Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, var lengst af helsti forsvarsmaður Pressunnar og einn stærsti eigandi.