Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir á Facebook síðu sinni að erlendis væri fjármálaráðherra, í þeirri stöðu sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins er nú, löngu farinn frá.
Hún vitnar í máli sínu til umfjöllunar Stundarinnar, sem sætti lögbanni sem nú hefur á tveimur dómstigum verið dæmt ólöglegt, en lögmaður Glitnis Holdco, Ólafur Eiríksson hrl., hefur óskað eftir áfrýjunarheimild frá Hæstarétti, til að fara með málið alla leið í dómskerfinu.
„Það er með ólíkindum hvað fjölmiðlar hafa lítið fjallað um frétt Stundarinnar eftir að lögbanni var aflétt um fjármál og virkan þátt Bjarna Benediktssonar í að stýra eða koma að fjárfestingum fjölskyldu sinnar upp á 130 milljarða kr. Öll fyrirtækin eru gjaldþrota eða hafa verið yfirtekin af kröfuhöfum. Afskriftirnar eru í samræmi við það. Bjarni og hans fjölskylda hafði sem sagt allt sitt á þurru meðan almenningur tapaði fúlgum fjár í hruninu. Það sem undrun sætir er að þegar Logi Einarsson tók málið upp á Alþingi í dag kom Katrín Jakobsdóttir Bjarna í skjól og sá ekkert athugavert við að hann sæti í stóli fjármálaráðherra. Erlendis væri fjármálaráðherra með þessa fortíð löngu farinn frá og ítarleg rannsókn sett í gang. Ætlar stjórnarandstaðan að gera eitthvað í málinu, krefjast umræðu og rannsóknar á þessu, eða ætlar hún að þegja eins og flestir fjölmiðlar? Þetta mál er hneyksli og á ekki að líðast,“ segir Jóhanna á Facebook síðu sinni.