Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða en 17 prósent segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þetta kemur fram í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup.
Breytingar á fylgi annarra framboða eru á bilinu 0,2 til 1,2 prósentustig og eru því ekki tölfræðilega marktækar. Fylgi við ríkisstjórnina eykst um prósentustig milli mánaða en nær helmingur þeirra sem taka afstöðu segjast styðja hana.
Tæplega 26 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, nær 11 prósent Viðreisn, tæplega 11 prósent Pírata og sama hlutfall Vinstri græn. Rúmlega 10 prósent segjast myndu kjósa Miðflokkinn, rúmlega 7 prósent Framsóknarflokkinn, ríflega 6 prósent Flokk fólksins, rösklega 1 prósent segist myndi kjósa aðra flokka og þar af liðlega 1 prósent Sósíalistaflokk Íslands.
Næstum 9 prósent segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10 prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.