Landsbankinn býður til sölu, í heild eða að hluta, allt að 12,1 prósent eignarhlut í fjárfestingarfélaginu Eyri Invest hf. Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna og er öllum opið sem teljast vera hæfir fjárfestar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Eyrir Invest hf. er fjárfestingarfélag sem stofnað var árið 2000. Langstærsta eign Eyris Invest hf. er 25,9 prósent eignarhlutur í Marel hf. Eyrir Invest hf. á einnig tæpan helmings hlut í Eyri Sprotum slhf., fjárfestingarfélagi sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum, og um þriðjungshlut í Efni ehf., sem sérhæfir sig í að byggja upp nýjar markaðs- og söluleiðir fyrir fyrirtæki í gegnum netsölu og samfélagsmiðla.
Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna í eigu bankans og er öllum opið sem teljast hæfir fjárfestar samkvæmt skilgreiningu laga um verðbréfaviðskipti.
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að áhugasamir fjárfestar geti haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans með því að senda tölvupóstfang á netfangið soluferli@landsbankinn.is. Tilboðsfrestur er til klukkan tólf miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi.