Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Samkvæmt Seðlabankanum var hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt á seinni hluta ársins er spáð 4,4 prósent hagvexti á árinu öllu í nóvemberhefti Peningamála. Það er tæplega 1 prósentu meiri vöxtur en bankinn spáði í ágúst. Gert er ráð fyrir að hægja muni á hagvexti á næstu misserum og að spenna hverfi úr þjóðarbúskapnum.
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að verðbólga hafi verið 2,8 prósent í október. Munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi ekki verið álíka lítill í rúm fjögur ár. Áfram dragi úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti vegur að innflutningsverð hafi hækkað umtalsvert að undanförnu. Að hluta endurspegli það hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði en gengi krónunnar hafi einnig lækkað frá því í ágúst.
„Horfur eru á að verðbólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir markmiði á næsta ári. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað undanfarið og eru nú yfir markmiði á alla mælikvarða. Verðbólguhorfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efnahagsumsvifa en áður var talið.
Aukin verðbólga og hærri verðbólguvæntingar síðustu mánuði hafa lækkað raunvexti Seðlabankans umfram það sem æskilegt er í ljósi núverandi efnahagsástands og -horfa. Því er nauðsynlegt að hækka vexti bankans nú.
Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Peningastefnunefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.
Vextir verða því sem hér segir:
- Daglán 6,25%
- Lán gegn veði í verðbréfum 5,25%
- Innlán bundin í 7 daga 4,50%
- Viðskiptareikningar 4,25%
- Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 4,25%
- Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%